Erlent

Hernum sigað á stuðningsmenn Suu Kyi í Búrma

Stjórnvöld í Búrma siguðu hernum á stuðningsmenn Aung San Suu Kyi leiðtoga stjórnarandstöðunnar þegar þeir kröfðust þess í dag að hún yrði látin laus úr stofufangelsi.

Suu Kyi á afmæli í dag og er sextíu og þriggja ára og að því tilefni minntu stuðningsmenn hennar á það að hún hefur verið í stofufangelsi í þrettán ár. Göngur til stuðnings Suu Kyi voru farnar t.d. í Tókýó, Nýju Deli og Maníla. Ekkert bendir til þess að herforyngjastjórnin ætli að láta hana lausa á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×