Bakþankar

Búr bjarnarins mikla

Þórgunnur Oddsdóttir skrifar

Einhverntíma hefði það eflaust þótt óviðeigandi að Íslendingar þyrftu á sjálfan lýðveldisdaginn að fá aðstoð Dana við að fella óboðinn þjóðhátíðargest. Sú var þó raunin í ár. Meðan þorri þjóðarinnar sleikti ís og keypti blöðrur steig fulltrúi hinnar áður drottnandi herraþjóðar á land eins og frelsandi hetja, vopnaður deyfibyssu og ísbjarnarbúri til að bjarga Íslendingum úr bjarnarklóm. Þar fór sjálfstæði þjóðarinnar fyrir lítið.

Þjóð sem ekki á ísbjarnarbúr er öðrum háð, það höfum við lært á undanförnum vikum. „Það er náttúrulega ekki til neitt búr hérna undir hann," sögðu menn til réttlætingar þegar fyrri björninn var felldur og gáfu í skyn að svona skepna þyrfti sérútbúið fangelsi sem ekki væri á allra færi að útbúa. Um leið og annar björn gerði sig heimakominn þótti vissara að kalla eftir útlendum bjargvætti og sterkbyggðu útlensku bjarnarbúri.

Svo kom Daninn með búrið.

Í fréttum var greint frá rammgerðu ísbjarnarbúri á leið til landsins. Myndirnar leyndu því hins vegar ekki að þarna var aðeins á ferðinni ólögulegur kassi sem hvaða skagfirski bóndi með aðgang að hamri og logsuðutæki hefði getað slegið saman á örfáum mínútum. Og þetta var flutt til okkar, eftir sólarhringsbið, alla leið frá Danmörku daginn sem þjóðin fagnaði sjálfstæði sínu. Þvílík niðurlæging. Hvað ætli starfsmenn dýragarðsins í Kaupmannahöfn haldi eiginlega um okkur. „Heyrðu, ég er víst að fara til Íslands að fanga bjarndýr." „Já blessaður taktu með þér nokkra gamla bjórkassa og járnabrakið þarna. Fer guttinn ekki með?

Hann getur dundað sér við að smíða búr fyrir þessa vesalinga á leiðinni."

Síðan var brunað með kassaræksnið í Skagafjörðinn, gott ef ekki í lögreglufylgd, og klifað á því allan tímann meðan þjóðin beið frétta af afdrifum bjarnarins að rammgert, já rammgert ísbjarnarbúr, væri á leiðinni.

Allir þekkja framhaldið. Búrið fer líklega aftur til Danmerkur ónotað þar sem það nýtist eflaust sem kartöflugeymsla eða moltukassi. Til allrar hamingju er nú unnið að viðbragsáætlun svo við þurfum ekki að hringja í Dani næst þegar hvítabirnir ganga á land. Áætlunin kveður eflaust á um að réttur búnaður þurfi að vera til staðar. Þar er almennilegt bjarnarbúr auðvitað lykilatriði. Einhver fær vinnu við að smíða það. Við skulum bara vona að það verði rammgert. Já, virkilega rammgert.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×