Erlent

Tólf ára stelpa stungin eftir MySpace rifrildi

SB skrifar
Deilur tveggja stúlkna út af MySpace endaði með skelfingu
Deilur tveggja stúlkna út af MySpace endaði með skelfingu
Tólf ára stúlka var stungin með hnífi í New Jersey eftir MySpace rifrildi. Átjan ára gömul frænka stúlkunnar réðst á hana eftir að sú yngri eyddi athugasemd út af síðunni hennar.

Þegar Stephanie Torres komst að því að 12 ára frænka hennar hafði eytt athugasemd út af síðunni hennar brjálaðist hún af reiði. Hún réðst á frænku sínu og stakk hana þrisvar sinnum með litlum hnífi sem hékk á lyklakippunni hennar.

Stúlkan hlaut stungusár á hnakka, hönd og maga. Ástand hennar er þó stöðugt.

Luz Benitez, amma litlu stelpunnar, stöðvaði áflogin. "Það var allt út í blóði," hafa bandarískir fjölmiðlar eftir henni. "Ég skil ekki hvernig svona á að geta gerst.

Lögreglan handtók Stephanie Torres eftir að hún flúði af vettvangi. Hún hefur áður komist í kast við lögin fyrir ofbeldisbrot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×