Paul Ramses var ekki handtekinn 4. júlí 2008 16:26 Paul Ramses
Útlendingastofnun sendi nú fyrir skömmu frá sér yfirlýsingu vegna máls Keníamannsins Paul Ramses og fjölskyldu hans. Þar kemur m.a fram að Paul hafi ekki verið handtekinn á heimili sínu eins og ítrekaði hafi komið fram í fjölmiðlum. Þar segir einnig að eiginkona hans sé ólögleg hér í landinu og það veiti hvorki rétt til samvista né sé til þess fallið að vera grundvöllur undir undanþágur frá almennum reglum. Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan: Yfirlýsing frá Útlendingastofnun í tilefni af umfjöllun um mál Paul Ramses og fjölskyldu hans. 4. júlí 2008 „Þótt Útlendingastofnun (ÚTL) leggi jafnan áherslu á að fjalla ekki opinberlega um mál þeirra einstaklinga sem þar eiga erindi til afgreiðslu er óhjákvæmilegt að gera grein fyrir nokkrum staðreyndum og sjónarmiðum stofnunarinnar um mál Pauls Ramses og fjölskyldu hans. Samkvæmt upplýsingum frá Paul ákváðu ítölsk yfirvöld að veita honum vegabréfsáritun vegna þeirrar aðstöðu sem hann var í í heimalandi sínu. Þessi áritun gilti frá 12.01.2008 - 20.02.2008. Paul kom til Íslands um miðjan janúar. Paul og eiginkona hans Rosemary voru boðuð til skýrslutöku hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins 28.01.2008, að beiðni ÚTL dags. 25.01.2008, vegna gruns um ólögmæta dvöl. Þar sýndi Paul Schengen-áritun útgefna af ítölskum yfirvöldum og aðspurður kvaðst hann ætla að fara frá landinu í kringum 10.02.2008. Paul sótti um hæli á Íslandi 31.01.2008 og þann sama dag var tekin af honum hælisskýrsla hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Þar var honum gefinn 3 daga frestur til að andmæla framsendingu beiðnar sinnar um hæli. Hinn 11.02.2008 voru send tilmæli til Ítalíu, um að taka við beiðni Pauls um hæli. Ítalir samþykktu beiðnina 31.03.2008. Grundvöllur þessa er að Ítalir höfðu veitt Paul vegabréfsáritun inn á Schengen svæðið. Rangt er að Ítalir beri ábyrgð á málinu vegna millilendinga þar í landi eins og ítrekað hefur komið fram. Hinn 26.03.2008 barst ÚTL greinargerð Katrínar Theódórsdóttur hdl., um að umsókn Pauls um hæli yrði tekin til meðferðar á Íslandi. Frestur til þess að skila inn greinargerð var liðinn en afstaða var tekin til hennar í ákvörðun. Ákvörðun ÚTL um framsendingu hælisbeiðni og Pauls lá fyrir 01.04.2008. ÚTL fékk staðfestingu frá Vinnumálastofnun 08.04.2008 um að Paul hefði verið að störfum 15.03.2008 án tilskilinna leyfa. Hinn 09.04.2008 var beiðni um birtingu ákvörðunar og flutning á grundvelli Dublin II reglugerðar send til ríkislögreglustjóra (RLS). Hinn 05.05.2008 boðaði RLS umsækjanda og Rauða Kross Íslands (RKÍ) til þess að birta honum ákvörðun ÚTL með tíðkanlegum hætti. Paul mætti ekki og varð því ekki af birtingu ákvörðunarinnar. Sama dag barst ÚTL bréf RKÍ þar sem fram kemur að Rosemary, eiginkona Pauls, sé barnshafandi og ætti hún að verða léttari eftir um tvær vikur. Vegna þessa var þess farið á leit við RLS sama dag með símtali og tölvupósti að fresta framkvæmd ákvörðunar þar til Rosemary hefði fætt barn þeirra. Lögreglumaður hafði símasamband við Paul á þeim tíma þegar hann átti að vera mættur. Hann var þá að eigin sögn staddur í skrifstofum RKÍ. Honum var tjáð að ekki yrði af för hans úr landi að sinni þar sem ÚTL hefði ákveðið að fallast á umrædda beiðni RKÍ um frestun þess að senda hann úr landi. Í þessu ljósi verður að skoða yfirlýsingar um að Paul hafi verið alls ókunnugt um að til stæði að senda hann úr landi á þessum grundvelli. Barn umsækjanda fæddist 26.05.2008. Staðfesting þess efnis barst frá RKÍ til ÚTL 29.05.2008 eftir beiðni frá ÚTL. ÚTL sendi á ný beiðni á RLS um birtingu og framkvæmd ákvörðunar 03.06.2008 og ítrekun sama efnis 25.06.2008. RLS birti ákvörðun 02.07.2008 og tilkynnti að hún yrði framkvæmd 03.07.2008. RLS sendi ÚTL tölvupóst vegna framkvæmdar birtingar og þar kemur fram, að hringt hafi verið í umsækjanda og hann beðinn um að hitta lögreglumenn á lögreglustöð, sem hann gerði. Það er því rangt sem ítrekað hefur komið fram, að Paul hafi verið handtekinn á heimili sínu. ------------------------ Samkvæmt reglum Dyflinarsamningsins bera ítölsk yfirvöld ábyrgð á að fjalla um hælisumsókn mannsins. Bæði í íslenskum lögum og í þeim reglum sem gilda um samvinnu þeirra ríkja sem eru aðilar að Dyflinarsamstarfinu er heimilt að víkja frá þessum almennu reglum. Slíkar undanþágur eiga t.d. við þegar menn eiga fjölskyldu í öðru ríki en því sem ber almennt ábyrgð á að fjalla um umsóknina. Í því máli sem hér um ræðir, háttar svo til að Rosemary, eiginkona Pauls, er stödd á Íslandi en hún er í ólöglegri dvöl. Samkvæmt upplýsingum frá Katrínu Theódórsdóttur hdl. er Rosemary með dvalarleyfi í Svíþjóð sem gildir til ársins 2012, en það veitir henni ekki rétt til dvalar á Íslandi. Hún sótti um dvalar- og atvinnuleyfi á Íslandi á árinu 2007 en var synjað. Síðan hefur hún ekki sótt um neins konar dvalarleyfi hér á landi. Útlendingastofnun hlýtur að taka mið af því hvort fólk er hér í löglegri dvöl eða ólöglegri. Ólögleg dvöl í landinu veitir hvorki rétt til samvista né er hún til þess fallin að vera grundvöllur undir undanþágur frá almennum reglum."
Mest lesið Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Erlent Eldur í þvottahúsi á Granda Innlent Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Innlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Skoðanabróðir Orbans og Fico vinnur kosningar í Tékklandi Erlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent Alelda bíll á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Sjá meira