Það var platað mig

Fréttablaðið Fastir pennar 18. ágúst 2008 06:00
Guðmundur Andri Thorsson
Guðmundur Andri Thorsson
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:

Stundum þegar ég hitti gamla vini sem búa enn í Reykjavík og þeir spyrja mig hvort það sé ekki alltaf rok þarna úti á Álftanesi þá svara ég: „Það er ekki eins og þú búir í einhverju Flórída". Og núna þegar þeir spyrja hvaða eilífu læti þetta séu alltaf hreint í bæjarpólitíkinni á Álftanesi þá get ég svarað: „Það er ekki eins þú búir í einhverju Sviss..."

Því að rokið er ekki meira á Álftanesi en víðast í höfuðborginni og lætin í pólitíkinni á Álftanesi eru aðallega eilíf upphlaup í þremur eða fjórum Sjálfstæðismönnum sem una því illa að vera ekki lengur í meirihluta. Því Sjálfstæðismenn eru jafn tapsárir og danskir handboltamenn. Það liggur einhvern veginn í eðli þeirra. Þeim finnst óskiljanlegt óréttlæti fólgið í því að þeir stjórni ekki öllu. Þeir líta svo á að stjórn Sjálfstæðismanna sé hin náttúrlega skipan hlutanna eins og Guð hafi gengið frá henni þegar hann var að skapa Adam og Evu og Ólaf Thors. Þeim er ámóta ljúft að láta af völdum og olíufélögunum að lækka bensínverðið.





Carry-on-stjórnin

Og nú hafa Sjálfstæðismenn stjórnað atburðarásinni í Reykjavík frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Reykvíkingar hafa fengið að kynnast því hvað kemur út úr valdapólitík Sjálfstæðismanna. Það er glundroði. Það er raunar slík vitleysa að Þórunn Elísabet Bogadóttir hittir naglann á höfuðið í pistli í Fréttablaðinu í gær þegar hún minnir á það hvernig einkunnarorð nýja meirihlutans - „Höldum áfram" - hljómar á ensku: Þetta er Carry-on-stjórnin.

Því Sjálfstæðismenn töpuðu síðustu kosningum - það er eins og það vilji stundum gleymast. Meirihluti kjósenda hafnaði því með öðrum orðum að þeir ættu að stjórna borginni en dreifði sér milli þeirra flokka sem áður störfuðu saman í Reykjavíkurlistanum. Það þarf því ekki að vekja undrun að Tjarnarkvartettinn skuli vera eini meirihlutinn á þessu kjörtímabili sem notið hefur stuðnings kjósenda og Dagur B. Eggertsson eini borgarstjórinn sem notið hefur almenns trausts - eða virtist yfirhöfuð valda starfinu. Að vísu líkaði kjósendum heldur vel við gamla góða Villa í byrjun þar til rann upp fyrir þeim að hann hafði enga stjórn á sínu fólki og virtist óvenju bíræfinn í því að segja bara það sem hentaði hverju sinni.

Fremur en að horfast í augu við að kjósendur höfnuðu þeim hafa Sjálfstæðismenn stundað það að lokka til sín veikasta hlekkinn hverju sinni í samstarfi andstæðinganna, og beitt fagurgala og blekkingum og síðan óhróðri og dylgjum til að losna við viðkomandi þegar ekki var hægt að notast við hann lengur og annað og betra bauðst.





Var platað hann?

Ólafur F. Magnússon hefði betur gert sér grein fyrir þessu fyrr. Hann kemur nú fram fyrir alþjóð sem hrekklaus einfeldningur og fórnarlamb klækja og refja sjálfstæðismanna: Það var platað mig.

Vissulega virtist manni á köflum sem jaðraði við að fjölmiðlar legðu hann hálfpartinn í einelti í starfi, það var alltaf einhver meinfýsinn tónn í skrifum fjölmiðla um hann og hann var sennilega ekki látinn njóta sannmælis fyrir staðfestu sína og allt var lagt út á versta veg fyrir honum. Nú hefur hann
meira að segja upplýst að það embættisverk sem hann hlaut einna mest ámæli fyrir - yfirgengilegar greiðslur fyrir hús á Laugaveginum - var runnið undan rifjum Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.

Var hann þá plataður? Já og nei. „Öll lygi er lygi að sjálfum sér," skrifaði Halldór Laxness í Skáldatíma, uppgjöri sínu við kommúnismann. Í þeim orðum eru mikilvæg sannindi. Ólafur F. átti að gera sér grein fyrir því að hann átti ekkert erindi í borgarstjórastólinn, og hann átti að þekkja sína
gömlu samflokksmenn nógu vel til að gera sér grein fyrir því að eitthvað annað bjó að baki gylliboðum þeirra en velvild og áhugi á málefnum hans: Hér var einungis verið að reka fleyg í samstarf til að komast til valda á ný og honum lofað öllu fögru - svo átti bara að sjá til með efndirnar.

Það var lítilsvirðing við borgarstjóraembættið að leiða þangað mann með jafn lítið umboð frá kjósendum - mann með mjög óljósa hreyfingu á bak við sig. Ólafur virðist hafa látið oflæti og hégómagirnd hlaupa með sig í
gönur, og þegar slíkar kenndir fara á kreik í sálinni er stutt í „lygina að sjálfum sér". Lýðræðið virkar einfaldlega ekki þannig að menn planti sér fyrst í hásætið og vinni síðan tiltrú kjósenda „með verkum sínum". Kosningar snúast um það að kjósendur segja til um hvaða einstaklingar hafi þessa tiltrú - og hverjir ekki.




Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 21:00

Mýtunni um þröngu píkuna haldið við

Ein kynlífsmýta, sem virðist ekki ætla að deyja, er sú að píkan verði víð við notkun. Í ný...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu þarf að undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Þeir starfa samkvæmt námskrá þannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigðisþjónustu

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hérlendis að þjónusta heilbrigðisstarfsfólks,...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 13:18

Vaxtaverkir

Í byrjun þess árs sem ég útskrifaðist úr grunnskóla, árið 1996, voru Íslendingar 267.958. ...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 09:00

Ósagðar Íslendingasögur

Það var viðtal við Baltasar í Fréttatímanum þar sem hann segir frá áformum um glæpaþætti í...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 06:00

Illa rökstudd delluhugmynd

Í nýju frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra til breytinga á fjölmiðlalögum e...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Óþörf styrjöld

Þetta á ekki að vera styrjöld í mínum huga, við eigum að reyna að ná málefnalega góðri nið...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Bölvun hlýrabolsins

Með hækkandi sól hafa áhyggjur mínar af klæðaburði sumarsins aukist. Það er augljóst að st...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Makríllinn og Evrópusambandið

Þarf deilan um makrílinn að hafa áhrif á aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið? Svarið er...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 09:00

Taka niður vegg

Tveir lagaprófessorar komast að þeirri niðurstöðu í álitsgerð, sem utanríkismálanefnd Alþi...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 06:00

Allt of mikið uppi á borðinu

Austurrískur laganemi, Max Scherns, bað Facebook um að senda sér allar persónuupplýsingarn...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 09:00

Til hvers?

Þótt Frakkar deili um hvor væri skárri forseti, Sarkozy eða Hollande, vefst yfirleitt ekki...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 06:00

Ólíðandi öfugþróun

"Okkur miðar ekki nægilega fram á við í að ná fram launajafnréttinu,“ segir Jóhanna ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Það var platað mig