Fótbolti

Ásdís Rán: Garðar negldi feitan díl

Hjónin Garðar Gunnlaugsson og Ásdís Rán Gunnarsdóttir.
Hjónin Garðar Gunnlaugsson og Ásdís Rán Gunnarsdóttir.

Skagamaðurinn Garðar Gunnlaugsson, sem leikið hefur með sænska liðinu Norrköping undanfarin ár, hefur skrifað undir þriggja ára samning við búlgarska liðið Lokomotiv Sofia. Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta og eiginkona Garðars greinir frá þessu á bloggi sínu.

Gefum Ásdísi Rán orðið: „Mikið ósköp er ég stolt af mínum heitt elskaða núna! Ferðinni er víst heitið til Búlgaríu næst þar sem Garðar negldi feitan 3 ára díl við Búlgörsku úrvalsdeildarmeistarana Lokomotiv-Sofia. Eg veit ekki alveg hvernig mér líður varðandi Búlgaríu en ég er svona að venjast tilhugsuninni og stefni á að hrista vel upp í landanum þar á komandi mánuðum !Halo! Þetta kom svona svakalega óvænt upp í hendurnar á okkur bara eins og lottó vinningur og maður er bara hálf dofinn ennþá... Nú hafa erfiði síðustu ára loksins borgað sig þetta er alveg ótrúleg tilfinning ég veit ekki hvort ég á að grenja, hlægja eða bara fara að kaupa mér föt!

Garðar ég elska þig - þú átt þetta svo sannarlega skilið ástin mín.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×