Innlent

Fjögurra bíla árekstur á Hringbraut í morgun

Enginn slasaðist þegar fjórir bílar lentu saman á Hringbraut í morgun. Bílarnir skemmdust talsvert og þurfti að fjarlægja einn þeirra með kranabíl.

Annars var mjög þung umferð á öllum helstu umferðaræðum á höfuðborgarsvæðinu og hringdu nokkrir ökumenn úr umferðarteppunum í fréttastofuna til að spyrjast fyrir um hvort umferðarslys væru valdur að þeim. Svo var ekki en haustumferðin er hins vegar brostin á af fullum þunga enda sumarleyfum lokið og skólahald hafið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×