Allt með kyrrum kjörum í Genf 10. september 2008 11:56
Umfangsmesta vísindatilraun sögunnar hófst í morgun þegar öreindahraðall CERN vísindastofnunarinnar í Genf var gangsettur. Vísindamenn segja að engin ástæða sé til að óttast að tilraunin endi í tortímingu jarðar en hún geti hinsvegar veitt nýja innsýn í efnissamsetningu alheimsins. Einni mikilvægri spurningu vísindamanna var svarað strax í morgun, spurningunni um hvort hinn ótrúlegi tækjabúnaður á hundrað metra dýpi undir borginni Genf virki yfirleitt. Það gerir hann. Fyrstu öreindunum var skotið inn í 27 kílómetra langar leiðslurnar klukkan sjö í morgun. Þær þjóta nú í gegnum alkulið í leiðslunum á ljóshraða, fara 11 þúsund hringi á sekúndu. Þessi dýrasta og - að sögn vísindamanna - stórkostlegasta vísindatilraun í sögunni miðar meðal annars að því að setja á svið aðstæður eins og þær sem voru sekúndubrotum eftir miklahvell, þegar heimurinn varð til fyrir 3,7 milljörðum ára, að því talið er. Vísindamenn vonast til að sjá og grípa eindir sem mönnum reiknast til að séu til en enginn getur verið viss um að séu raunverulegar. Á næsta ári eða svo vonast menn til að sanna eða afsanna kenningar sem meðal annars leitast við að útskýra hvaða efni mynda alheiminn. Búist er við að gögnin, sem safnað er í tölvum, myndu - ef þau væru brennd á geisladiska - fylla geisladiskastæðu sem næði um tuttugu kílómetra hæð.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Innlent Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Erlent Allt á suðupunkti í Þorlákshöfn vegna kosninganna Innlent Erlendir fjárfestar buðu fúlgur fjár Innlent Sauð upp úr í morgunumferðinni Innlent Mega lækka lífeyrisgreiðslur mismikið eftir aldri Innlent Settu bílslys á svið Innlent Ríkar kröfur gerðar í nýrri auglýsingu um sendiherraembætti Innlent Kannast ekki við áform um brjóstmynd úr bronsi Innlent Fleiri fréttir Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Sjá meira