Vísir, 12. sep. 2008 16:00

Keyptu fimm ára telpu til ţess ađ hópnauđga

mynd
Rogere Took er nánast horfinn af netinu. Ţetta er eldgömul mynd.

Óli Tynes skrifar:

Þótt það sé ekki venja í fréttum er rétt að geta þess að frásögnin sem hér fer á eftir er skelfileg lesning. Viðkvæmir ættu að hætta hér.

Roger Took var var virtur og frægur breskur sagnfræðingur, rithöfundur, safnstjóri frægra listasafna á við Barbican og stofnandi hinnar gríðarlega vel heppnuðu Artangel listasmiðju.

Hann var elskaður og dáður í breska listaheiminum. Roger Took var líka einhver skelfilegasti barnaníðingur og sadisti sem sögur fara af. Hann er nú 62 ára gamall.

Keyptu fimm ára telpu

Í grein í breska blaðinu Spectator hóf blaðakonan Charlotte Metcalf grein sína á þessum orðum:

„Fimm ára gömul telpan hniprar sig saman nakin og grátandi í horni herbergisins. Hún er svo hrædd að hún pissar undir. Einn mannanna í herberginu lemur hana margsinnis. Hinir hlæja. Annar maður tekur hana upp og fleygir henni á grúfu á rúmið. Svo nauðga mennirnir henni. Hún deyr af skelfilegum áverkum."

Roger Took stærði sig margsinnis af þessu á spjallrásum barnaníðinga. Hann segir frá því að hollenskur maður hafi keypt fimm ára gamla telpuna í Kambódíu og haldið henni í viku þartil hún dó. Hann lýsir því að hann hafi verið einn af hópi manna sem nutu þess að „kljúfa hana í sundur."

Níu ára dóttir vændiskonu

Took stærði sig af mörgum öðrum ódæðisverkum. Hann sagði frá því hvernig hann bar vín í vændiskonu þartil hún sofnaði ölvunarsvefni. Þá sneri hann sér að níu ára dóttur hennar. Hann lýsti skelfingu telpunnar þegar hann sneri upp á handlegginn á henni áður en hann nauðgaði henni.

Barnabörnin líka

Took lýsti í smáatriðum hvernig hann margsinnis misnotaði hina fötluðu þriggja ára gömlu Cathy, sem var eitt af stjúp barnabörnum hans. Hann setti líka á netið myndir sem hann tók af tveim öðrum stjúpbarnabörnum sínum Grace sem var níu ára og Gillian sem var ellefu ára.

Hann gerði samanburð á leggöngum þeirra og bauð spjallvinum sínum að fróa sér yfir myndunum. Took fékk mörg svör við pistlum sínum og oft mátti þar sjá skammstöfunina „lol" sem þýðir „laughing out loud" eða ég hlæ upphátt, þegar lýsingarnar voru sem skelfilegastar.

Dýr að nauðga börnum

Took kvæntist konu sinni Pat fyrir tuttugu og fimm árum. Hún er auðug og þekktur listmálari sem gerir sér nú grein fyrir því að hann kvæntist henni vegna peninganna og til þess að komast að börnunum í fjölskyldunni.

Þegar hann loks var handtekinn fundust á fartölvu hans 742 netspjöll upp á meira en 1500 síður. Þar fundust einnig hundruð mynda af börnum sem verið var að nauðga eða pynta. Á sumum myndanna voru dýr að nauðga börnum.

Loksins afhjúpaður

Það komst loks upp um Took í febrúar á síðasta ári. Þá fór hann ásamt eiginkonu sinni, tveim dætrum hennar og stjúp barnabörnunum Grace og Gillian í frí til Dóminikanska lýðveldisins.

Á leiðinni út á flugvöll á heimleiðinni fann móðir Grace eitthundrað dollara í farangri hennar. Grace sagði að Took hefði gefið henni peningana fyrir að leyfa sér að taka myndir af henni.

Þegar móðirinn gekk á hana viðurkenndi níu ára gömul telpan að hann hefði misnotað hana svo lengi sem hún mundi eftir sér. Við heimkomuna fór móðirin til lögreglunnar.

Í febrúar síðasliðnum var Took dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi vegna sumra brota sinna og í ótímabundið fangelsi fyrir önnur.

Á að þegja um málið?

Viðbrögðin við þessu máli í Bretlandi eru vægast sagt furðuleg. Fjölmiðlar hafa nánast ekkert fjallað um það. Í Time var fangelsisdómsins getið í tveim línum inni í blaðinu. Önnur blöð gerðu ekkert.

Hvers vegna í ósköpunum? Þykir það ótilhlýðilegt að fjalla um jafn virtan og dáðan mann sem hafi lent í einhverjum smá ógöngum? Er þarna breska yfirstéttin að sýna sínar verstu hliðar?

Berum þetta til dæmis saman við rokkstjörnuna og barnaníðinginn Gary Glitter. Mál hans hefur verið í blöðunum undir flennistórum fyrirsögnum vikum saman.

Horfinn af netinu

Það er eins og eigi bara að sópa máli Tooks undir teppið. Prófið að Googla nafn hans. Það finnst nánast ekkert. Jafnvel á vefsíðu listasmiðjunnar Artangel er nafn stofnandans hvergi finnanlegt.

Myndir af honum er einnig horfnar. Myndin sem fylgir þessari frétt er margra ára gömul.






Fleiri fréttir

Erlent 18. mar. 2010 10:28

Ađ drepa fyrir frćgđina

Frönsk félagsfrćđitilraun hefur vakiđ mikla athygli en í tilrauninni var ţáttakendum talin...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 10:03

Ísraelar trampa á Evrópusambandinu

Utanríkisráđherra Ísraels notađi heimsókn utanríkis- og öryggismálafulltrúa Evrópusambands...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 08:25

Elísabet á pundinu í hálfa öld

Í ţessari viku er hálf öld liđin frá ţví fyrstu sterlingspundin međ andliti Englandsdrottn...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 08:04

Búálfur framdi bankarán

Lögreglan í Tennessee í Bandaríkjunum skaut tvo menn til bana í gćr, ţegar til skotbardaga...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 08:01

María mey birtist í Bosníu

Vatikaniđ í Róm hefur hafiđ formlega rannsókn í Bosníu en ţar virđist sem María mey hafi b...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 08:00

Ekkert fararsniđ á mótmćlendum í Bangkok

Stjórnarandstćđingar í Tćlandi segjast ćtla ađ halda mótmćlum undanfarinna daga áfram uns ...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 07:55

Ashton heimsćkir Gaza

Yfirmađur utanríkismála hjá Evrópusambandinu, barónessan Catherine Ashton, heimsćkir í dag...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 04:30

Lögregluţjónn kveikti í húsum

Danskur lögregluţjónn hefur veriđ ákćrđur fyrir ađ hafa undanfarnar vikur kveikt ađ minnst...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 03:13

Evrópuríki selja pyntingartól

Mannréttindasamtökin Amnesty International hvetja Evrópusambandiđ til ađ loka öllum lagale...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 03:13

Segir bin Laden aldrei nást á lífi

Eric H. Holder, dómsmálaráđherra Bandaríkjanna, segist sannfćrđur um ađ Osama bin Laden ve...  

Meira

Erlent 18. mar. 2010 03:13

Blóđi hellt á hús og vinnustađ Abhisits

Mótmćlendur í Taílandi héldu áfram ađ skvetta blóđi til ađ leggja áherslur á kröfur sínar ...  

Meira

Erlent 17. mar. 2010 16:59

Lárviđarljóđ um hásin Beckhams

Lárviđarskáld Bretlands Carol Ann Duffy hefur gert hásin Davids Beckham ódauđlega međ ţví ...  

Meira

Erlent 17. mar. 2010 16:07

Rússnesk ritskođun

Tuttugu og fimm ára gamall bassaleikari í breskri hljómsveit var rekinn úr járnbrautarlest...  

Meira

Erlent 17. mar. 2010 15:50

Út međ ţig stelpa

Níutíu og tveggja ára gömul bresk ekkja hefur loks fengiđ samţykki dómstóla fyrir ţví ađ r...  

Meira

Erlent 17. mar. 2010 14:28

Englarnir fljúga aftur í Los Angeles

Stysta járnbrautarleiđ í heimi hefur veriđ opnuđ aftur í Los Angeles. The Angels Flight he...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir


Nýtt á Vísi

Hyggur ţú á ferđalög í sumar?


Kjörkassinn

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni

-- catnafn="Erlent"--