Lífið

Heldur tónleika til styrktar Ellu Dísar

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ella Dís eytt löngum stundum á spítala. Mynd af bloggsíðu Ellu Dísar.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ella Dís eytt löngum stundum á spítala. Mynd af bloggsíðu Ellu Dísar.

Tónleikar til styrktar Ellu Dísar Laurens verða haldnir í Háskólabíói þann 13. október næstkomandi klukkan átta. Landslið íslenskrar tónlistarmanna mun koma fram á tónleikunum, en þar á meðal verða Páll Óskar og Monika, Hansa og Selma ásamt Magna og Birgittu. Felix Bergsson verður kynnir á tónleikunum. Allur ágóðinn verður til styrktar Ellu Dísar.

Ella Dís er liðlega tveggja og hálfs árs gömul stelpa sem hefur þjáðst af hrörnunarsjúkdómi í rösklega eitt ár. Móðir hennar hefur þurft að vera frá vinnu vegna veikinda hennar. Þá hefur hún leitað til sérfræðinga erlendis til að finna bót á meinum stúlkunnar. „Þetta hefur kostað mig á bilinu 15 - 16 milljónir," sagði Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar, í samtali við Vísi í morgun. Hún segist hafa fengið 9 milljónir í styrk. Þar af hafi um tvær komið frá Tryggingastofnun. Hitt hafi komið frá almenningi.

Það er Inga Björg Stefánsdóttir, tónmenntakennari í Mýrarhúsaskóla, sem hefur veg og vanda að skipulagningu tónleikanna. Hún segist ekkert þekkja til Ellu Dísar persónulega. „Ég sest stundum niður á milli tíma og les tölvupóstinn minn. Þá les ég stundum bloggið hennar," segir Inga. Hún segist hafa séð að einhver væri að stinga upp á því að haldnir yrðu styrktartónleikar til að létta undir með Rögnu, móður Ellu Dísar. „Ég ákvað bara að slá til," segir Inga Björg.

Auk listamanna eru fjölmargir aðrir sem gefa vinnu sína í verkefnið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×