Innlent

Segir Kristin verða fyrir einelti

Guðjón Arnar Kristjánsson er formaður Frjálslynda flokksins.
Guðjón Arnar Kristjánsson er formaður Frjálslynda flokksins.

Guðjón Arnar Kristjánsson segir að Kristinn H. Gunnarsson sé lagður í einelti af einstaklingum í miðstjórn Frjálslynda flokksins.

,,Það eru greinilega einhverjir í miðstjórn sem standa fyrir einelti gagnvart Kristni Gunnarssyni og það er mjög leitt þegar svoleiðis er," segir Guðjón.

Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur skorað á þingflokkinn að gera Jón Magnússon, þingmann, að formanni þingflokksins í stað Kristins. Í samtali við Vísi í gær sagði Jón að hann teldi ekki koma til greina að Kristinn yrði áfram þingflokksformaður.

,,Það liggur alveg fyrir að ég er ekki sammála þessari niðurstöðu," segir Guðjón og bætir við að þingflokkurinn taki sínar ákvarðanir í þinginu líkt og aðrir þingflokkar. ,,Kristinn er þingflokksformaður þangað til annað verður ákveðið."

Grétar Mar Jónsson, þingmaður flokksins, sagði í gær að Guðjón Arnar hafi lýst því yfir fyrir nokkru síðan að Jón ætti að taka við af Kristni um mitt kjörtímabil eða næsta vor. Guðjón vildi ekki staðfesta þetta í samtali við Vísi. ,,Þetta er metið eitt ár í senn og við metum þetta þegar þar að kemur."

Aðspurður hvort gerðar verði breytingar á forystu þingflokksins þegar þing kemur saman í byrjun október segir Guðjón: ,,Ég á ekki von á því."




Tengdar fréttir

Segir árás Jóns lítt dulbúna atlögu að Guðjóni Arnari

Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, segir að árás Jóns Magnússonar og stuðningsmanna hans á sig, sé lítt dulbúin atlaga að formanni flokksins sem miði að því að koma Jóni Magnússyni í formannssæti.

Kemur ekki til greina að Kristinn verði áfram þingflokksformaður

Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur skorað á þingflokkinn að gera Jón Magnússon, þingmann, að formanni þingflokksins í stað Kristins H. Gunnarssonar. Kristinn H. vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir hafði samband við hann en Jón Magnússon segir að Kristni sé ekki sætt á stóli þingflokksformanns.

Össur býður Kristni í Samfylkinguna

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra býður Kristni H. Gunnarssyni, þingflokksformanni Frjálslynda flokksins, að ganga í Samfylkinguna vegna þeirra deilna sem nú eru innan Frjálslynda flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×