Innlent

Truflanir á netsambandi til útlanda

Hrannar Pétursson er upplýsingafulltrúi Vodafone.
Hrannar Pétursson er upplýsingafulltrúi Vodafone.

Truflanir eru nú á netsambandi við útlönd vegna rofs á ljósleiðara á milli Hveragerðis og Selfoss að sögn Hrannars Péturssonar, upplýsingafulltrúa Vodafone.

Bilunin kom upp klukkan rúmlega fjögur í dag og er unnið að viðgerð. Fyrir vikið hægir á allri umferð á erlendu niðurhali, að sögn Hrannars.

Þá komu upp vandræði seinnipartinn varðandi þjónustuleiðir á netsambandi og heimasímum í Vestmanneyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×