Innlent

Forsetinn í hjartaþræðingu og kransæðavíkkun

MYND/Hrönn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gekkst undir hjartaþræðingu og kransæðavíkkun á Landspítalanum fyrr í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Þar segir að forsetinn hafi dvalið á hjartadeild Landspítala á mánudag og þriðjudag í þessari viku og gengist undir hjartaþræðingu og kransæðavíkkun. Aðgerðin tókst ágætlega en í framhaldi af henni hafa læknar ráðlagt forseta að vera ekki í fullu starfi næstu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×