Kröfur aukast um opinbera rannsókn í Bretlandi vegna Íslands 5. nóvember 2008 09:31
Kröfur um opinbera rannsókn á því hvernig bresk stjórnvöld brugðust við hruni íslensku bankanna gerast nú æ háværari á breska þinginu. Íhaldsflokkurinn gerir nú kröfu um slíka rannsókn en áður hafa Frjáslyndir demókratar gert slíka kröfu. Í frétt á vef breska blaðsins Times er fjallað um endurgreiðslur til þeirra sem áttu Icesave-reikinga í Bretlandi. Þar kemur fram að Mark Hoban, fjármálaráðherra í skuggaráðuneyti Íhaldsflokksins, hafi óskað eftir víðtækri opinberri rannsókn. Hoban vill að rannsóknin nái til þess hvernig bæði ríkisstjórn Bretlands og fjármálaeftirlit landsins stóðu að málum þegar íslensku bankarnir urðu gjaldþrota. Einnig vilja íhaldsmenn að undanfari aðgerða stjórnvalda verði rannsakaður nákvæmlega. Þessar kröfur koma í kjölfar frétta í breskum fjölmiðlum um að breska fjármálaráðuneytið hafi fylgst með þróuninni á Íslandi í sex mánuði áður en bankakerfi Íslands hrundi. Það leiddi til mikils taps hjá breskum sparifjáreigendum sem og sveitarstjórnum.
Mest lesið Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Bestu íslensku auglýsingar ársins 2013 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira