Innlent

Ítreka andstöðu sína við aðild að Evrópusambandinu

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vg flytur ræðu á Grand Hótel fyrir stundu.
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vg flytur ræðu á Grand Hótel fyrir stundu. MYND/STÖÐ 2

Vinstri grænir ítreka andstöðu sína við aðild Íslands að Evrópusambandinu og telja hagsmunum landsins best borgið utan sambandsins.

Þetta kemur fram í drögum að samþykkt, sem stjórn flokksins hefur lagt fram á auka flokksráðsfundi, sem stendur nú yfir á Grand hóteli í Reykjavík. Þar er þess krafist að boðað verði til kosninga.

Meðal aðgerða, sem Vinstri grænir vilja að ráðist verði í á næstunni, er að sett verði þak á hækkun höfuðstóls verðtryggðra húsnæðislána, vaxtabætur verði hækkaðar, nauðungaruppboð verði stöðvuð næstu 2-3 mánuði hið minnsta, umtalsverðu viðbótarfjármagni verði strax veitt til sveitarfélaganna og að opinberum bönkum og lánastofnunum verði gert að styðja atvinnufyrirtæki gegnum yfirstandandi erfiðleika með skuldbreytingum, og rekstrar- eða endurfjármögnun.

 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×