Lífið

Tjarnargæsir bætast í hóp mótmælenda á Alþingi

MYND/Egill

Hópur gæsa af Tjörninni hefur nú bæst við mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið. Þær vappa þar um í mestu friðsemd að vísu svo öruggt er að lögreglan þarf ekki að beita piparúða gegn þeim.

Fyrir utan hávært kvak gegn ástandinu og minnkandi brauðgjöfum á Tjörninni óttast alþingsmenn það mest að gæsirnar fari að verpa eggjum utan í þinghúsið með tilheyrandi viðbótarkostnaði í þrifum þar á bæ.

Forseti Alþingis hefur enn ekki kvatt lögregluna á staðinn vegna gæsanna enda engin hætta talin á að þær reyni að ryðjast upp á þingpalla og drita þar yfir þingmenn og ráðherra.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×