Íslendingar yfir 400.000 talsins árið 2050 17. desember 2008 09:24
Samkvæmt spá um mannfjölda á Íslandi verða landsmenn 408.835 árið 2050 en íbúafjöldi var 313.376 við upphaf spátímabils hinn 1. janúar 2008. Árleg fólksfjölgun verður að meðaltali 0,6% sem er minni fjölgun en var á síðari hluta 20. aldar. Landsmönnum mun þó fyrirsjáanlega fækka fyrstu tvö ár spátímabilsins. Þetta kemur fram í Spá um mannfjölda 2008-2050 í ritröð Hagtíðinda undir efnisflokknum Mannfjöldi sem komin er út. Vegna lengri meðalævi og lækkaðrar fæðingartíðni verða talsverðar breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar. Öldruðum mun fjölga verulega á spátímabilinu einkum undir lok þess. Í dag tilheyra elstu þjóðfélagsþegnarnir óvenjufámennum fæðingarárgöngum sem fæddust á kreppuárunum. Eftir 2020 þegar fjölmennir árgangar eftirstríðsáranna komast á eftirlaunaaldur mun hlutfall aldraðra hækka verulega. Árið 2050 verða 8,3% íbúa áttræðir eða eldri samanborið við 3,2% við upphaf spátímabils. Þótt gert sé ráð fyrir því að barnsfæðingum fækki nokkuð á spátímabilinu verður fæðingartíðni áfram há í evrópsku samhengi. Fæðingartíðni hefur hækkað nokkuð undanfarin ár og í dag geta íslenskar konur vænst þess að eiga 2,1 börn um ævina. Gert er ráð fyrir að fyrstu tvö ár spátímabilsins verði frjósemishlutfall tæplega 2,1 en lækkar nokkuð í kjölfarið og mun standa í 2,0 fram til 2015. Eftir það mun frjósemishlutfall lækka jafnt og þétt í 1,85 við lok spátímabils. Vegna fremur hárrar fæðingartíðni verða börn og ungmenni hlutfallslega fjölmenn hér á landi. Árið 2050 mun 22,9% íbúa tilheyra aldurshópnum 0-19 ára en í dag er þetta hlutfall 28,5%.
Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira