Innlent

Foreldrar borguðu fyrir jarðýtu sem banaði dóttur þeirra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þóra Karítas Árnadóttir.
Þóra Karítas Árnadóttir.

Við þurfum öll að vera vakandi og öll að láta í okkur heyra. Það er svo hættulegt þegar að allt góða fólkið gerir ekki neitt. Þetta voru skilaboð ungrar bandarískrar konu, Rachel Corrie, sem lét lífið á Gaza svæðinu árið 2003. Corrie, sem var 24 ára gömul, dó þegar ísraelsk jarðýta ók yfir hana þegar hún var að verja hús palestínsku fjölskyldunnar sem hún bjó hjá. Þóra Karítas Árnadóttir leikkona ætlar að segja frá lífi hennar á opnum fundi sem félagið Ísland Palestína stendur fyrir í Iðnó á morgun.

Þóra segir að Corrie hafi verið bandarískur ríkisborgari sem hafi unnið að því að koma á friði í heiminum. „Tólf ára gömul talaði Rachel Corrie um hungrið í heiminum og valdaójafnvægið í heiminum og hvernig okkur sem forréttindafólki ber skylda til að lýsa upp heiminn með því að leiðrétta það ójafnvægi sem ríkir. Vegna þess að annars bara sigra myrkraöflin," segir Þóra, sem fer með hlutverk Rachel í uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu „Ég heiti Rachel Corrie" sem frumsýnt verður 19. mars.

Palestínumenn með sprengjur eins og litli bróðir

Þóra Karítas segir að augu alheimsins hafi opnast mjög fyrir ástandinu á Gaza vegna þeirra fjöldamorða sem hafi átt sér stað á undanförnum dögum. Þrátt fyrir það megi ekki gleyma því að stanslaus átök hafi verið á svæðinu. Þau hafi vissulega magnast í desember, en hafi alltaf verið alvarleg. Hún gagnrýnir jafnframt þá sem vilji ekki fordæma árásir Ísraelsmanna á Palestínumenn vegna aðgerða Hamas samtakanna. Þessu sé ekki saman að jafna. „Palestínska þjóðin hefur engin vopn á sínum höndum. Þeir eru að reyna að smygla einhverjum vopnum á milli landamæra, en eru mest með heimatilbúnar sprengjur eins og bróður minn var að búa til í efnafræðisettinu sínu þegar að hann var 12 ára. Þetta er aftur á móti stærsta hernaðarveldi í heimi sem er bakkað upp af Bandaríkjunum," segir Þóra Karítas.

Bandaríkjamenn borguðu fyrir Catepillar jarðýtuna

Þóra segist hafa hitt foreldra Corrie á Gaza svæðinu í mars, þar sem þau starfi við að breiða út erindi hennar. „Þá segja þau mér að þau hafi borgað fyrir Catepillar jarðýtuna sem drap dóttur þeirra. Þannig að þau eru að setja þetta í samhengi með það að benda á í hvað skattpeningar þeirra hafa farið," segir Þóra Karítas og útskýrir orð sín með því að benda á að stór hluti af skattfé Bandaríkjamanna fari í hernað. Búnaður Bandaríkjahers sé jafnframt oft prófaður á Gaza svæðinu.

Þóra Karítas segir frá lífi Corrie á fundinum á morgun. Auk hennar flytja Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, og Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins framsögur. Þá mun Bubbi Morthens syngja nokkur lög. Fundurinn hefst klukkan fjögur.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×