Líklegt að kynjahlutfall verði jafnt í ríkisstjórn 27. janúar 2009 18:54
Líklegt er að ráðherraembætti muni skiptast jafnt milli Samfylkingar og Vinstri grænna í nýrri ríkisstjórn og að ráðherrum verði fækkað úr tólf í átta. Þá er útlit fyrir að í fyrsta skipti í sögunni verði jafnt kynjahlutfall í ríkisstjórninni. Til greina kemur að sérfræðingar utan þings taki sæti í ríkisstjórninni. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa Vinstri grænir lagt fram hugmyndir um að ráðherrum verði fækkað úr því að vera 12 í 8. Í stórum dráttum heldur Samfylkingin þeim ráðuneytum sem hún hefur veitt forstöðu í fráfarandi ríkisstjórn. Skipting ráðuneyta á milli flokka er jafnan ákveðin á síðustu stundu og liggur því ekki fyrir, en samkvæmt heimildum fréttastofu lítur listinn svona út: Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherra, en um það mun ríkja sátt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yrði áfram formlega utanríkisráðherra, en fer í leyfi og myndi Össur Skarphéðinsson þá taka að sér verkefni ráðuneytisins í hennar fjarveru. Össur myndi jafnframt verða nokkurs konar atvinnumálaráðherra og undir hann myndu heyra iðnaðar-, viðskipta-, landbúnaðar-, og sjávarútvegsráðuneytin. Þó er nokkuð óljóst með viðskiptaráðuneytið, en hugmyndir eru um að það verði gert öflugra en það er nú. Í embætti dómsmálaráðherra myndi veljast Lúðvík Bergvinsson. Vinstri grænir fengju fjármálaráðuneytið og myndi Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, verða fjármálaráðherra, Ögmundur Jónasson er talinn líklegur til að verða ráðherra í heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti, Katrín Jakobsdóttir er sögð koma til greina sem menntamálráðherra og Kolbrún Halldórsdóttir myndi fara í umhverfisráðneytið. Þá ríkir nokkur óvissa undir hvaða ráðherra Samgönguráðuneytið lendir. Þá hefur það einnig verið í umræðunni að aðilar utan þings taki sæti í ríkisstjórn. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, staðfesti þetta í dag.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira