Innlent

Nýr ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytið

Ragnhildur Arnljótsdóttir.
Ragnhildur Arnljótsdóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sett Ragnhildi Arnljótsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu til 30. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Bolli Þór Bollason hefur fengið leyfi frá störfum ráðuneytisstjóra á sama tímabili og mun sinna sérverkefnum.

Ragnhildur er fædd 20. júní árið 1961. Hún útskrifaðist sem lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1991. Ragnhildur hefur gegnt embætti ráðuneytisstjóra í félags- og tryggingamálaráðuneytinu frá árinu 2004. Hún starfaði áður í nefndadeild Alþingis og í heilbrigðisráðuneytinu og var fulltrúi félagsmálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins í sendiráði Íslands í Brussel.

Ragnhildur er gift Ástvaldi Jóhannssyni og eiga þau þrjú börn, Arnljót, Jóhann Pál og Ásthildi Emmu.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×