Innlent

VG með prófkjör í Norðausturkjördæmi

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, er þingmaður Norðausturkjördæmis.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, er þingmaður Norðausturkjördæmis.
Vinstri græn í Norðausturkjördæmi halda prófkjör vegna Alþingiskosninganna í apríl laugardaginn 28. febrúar næst komandi. Kjörstjórn auglýsir eftir frambjóðendum í átta efstu sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu.

Vinstri græn fengu tvo þingmenn kjörna í Norðausturkjördæmi í kosningunum fyrir tveimur árum. Þau Steingrím J. Sigfússon og Þuríði Backman.

Framboðsfrestur rennur út klukkan 17 mánudaginn 16. febrúar. Kosningarétt hafi allir félagsmenn í aðildarfélögum í kjördæminu miðað við 23. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×