Innlent

Leituðu aðstoðar lífeyrissjóðanna rétt fyrir hrunið

Landsbankinn reyndi aðeins nokkrum klukkutímum fyrir hrun að fá lífeyrissjóðina til að gera upp gjaldmiðlaskiptasamninga upp á tugi milljarða króna. Það kom aldrei til greina að verða við beiðninni segir framkvæmdasjtóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna.

Eins og fram kom í fréttum stöðvar tvö í gær reyndi Landsbankinn að fá lífeyrirssjóðina til að gera upp gjaldmiðlaskiptasamninga skömmu áður en bankinn hrundi.

Með þessu ætlaði bankinn fá til sín gjaldeyri sem samkvæmt heimildum fréttastofu átti að nota til að færa Icesave reikningana yfir í breska lögsögu.

Beiðni bankans var send með tölvuskeyti á nokkra lífeyrissjóið sama dag og neyðarlögin voru sett.

,,Þetta var sent á ýmsa sjóði ég held að mönnum hafi ekkert litist á það að fá þetta með þessum hætti. Við þetta var þessi örlagaríka helgi þegar neyðarlögin voru sett um kvöldið og ljóts að bankarnir voru að falla. Og af þessu gæti alls ekki orðið með neinum hætti," segir Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða.

Neikvæða staða gjaldmiðlasamninga lífeyrissjóðanna við Landsbankann nam rúmum 17 milljörðun króna þegar hann féll samkvæmt upplýsingum frá lífeyrissjóðunum.

Hrafn segir að ekkert hafi veirð minnst á Icesave reikninga í umræddum tölvuskeytum.

,,Þannig að ef menn hafa haldið það að það væri okkur að kenna að Icesave skyldi lenda á þjóðinni þá er það auðvitað hinn mesti misskiliningur."


Tengdar fréttir

Lífeyrissjóðirnir neituðu Landsbankanum

Landsbankinn reyndi skömmu fyrir hrun að fá lífeyrissjóðina til að gera upp gjaldmiðlaskiptasamninga við bankann upp á 600 milljónir evra. Fjárhæðin hefði dugað bankanum til að verða við kröfu breska fjármálaeftirlitsins til að taka Icesave í flýtimeðferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×