- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Um eitthundrað og tuttugu manns mættu á fund Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur, sem er innan Samfylkingarinnar, en þar var Jón Baldvin aðalræðumaður. Hann rakti orsakir bankahrunsins og fór meðal annars hörðum orðum um forystu gamla Landsbankans og forystu Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði þær ríkisstjórnir sem hefðu verið við völd bera ábyrgð, ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks bæði með Framsóknarflokki og Samfylkingunni.
Sjálfur kvaðst hann eftir átta ára setu í ríkisstjórn vita hverjir væru ábyrgir í ríkisstjórnum. Það væru formenn flokka. Þeri bæru höfuðábyrgð á því sem væri gert og látið ógert.
Eftirlitsstofnanir bæru ábyrgð, með Seðlabankann fremstan. Þar inni sæti núna í byrgi sínu maður sem væri farinn að minna á seinustu daga Hitlers. Í staðinn fyrir að koma út sjálfviljugur í ljósi þess að hann hefði setið yfir hruni gjaldmiðilsins og hruni fjármálakerfisins, þá átti hann að koma út bljúgur og biðjast afsökunar.
Sjálfstæðisflokkinn dæmdi hann hart. Hann hefði á löngum tíma byggt upp valdakerfi sem væri rotið, spilt og ónýtt. Hann sagði flokkinn ábyrgan fyrir löngum lista af hagstjórnarmistökum, sem hann gæti ekki vikist undan, og sagði sjálfstæðismenn hafa skilið samfélagið eftir eins og brunarústir. Þeir kynnu síðan ekki að skammast sín.
Flokkur hefði dæmt sjálfan sig úr leik, flokkur sem væri þverklofinn í öllum helstu málum, með gjörsamlega ónýta forystu, ætti að láta þjóðina í friði. Hann ætti núna að fara í innhverfa íhugun og andlega uppbyggingu, "gott ef hann ætti ekki bara að fara með Jónínu í toxic til Póllands," sagði hann.
Forysta Samfylkingarinnar yrði hins vegar að líta í eigin barm. Þa yrði að skýra það hversvegna formaður flokksins eyddi mestum tíma sínum á hættuástandstímabili í ómerkilegasta flopp íslenskra utanríkismála; tilraun til að komast í öryggisráðið.
Hann nefndi annað dæmi. Formenn beggja stjórnarflokka, bæði Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, hafi síðastliðið haust skipt með sér verkum og farið til New York og Kaupmannahafnar til þess að tala máli bankaútrásarinnar. Þar hefði verið talað gegn öllum staðreyndum.
Samfylkingin hefði átt að segja sig frá stjórnarsamstarfinu fyrir löngu. Þegar hún sagðist ekki bera ábyrgð á gerðum Davíðs Oddssonar, og það var ekki tekið mark á henni, þá hefði hún daginn eftir átt að segja sig frá stjórnarsamstarfinu. "Við látum ekki bjóða okkur svona trakteringar í nafni íslenskrar alþýðu. Það er óboðlegt. Maður hótar ekki í pólitík nema maður standi við það," sagði Jón Baldvin og hlaut fyrir lófaklapp. Forysta Samfylkingarinnar hefði ekki staðið vaktina og rof hefði myndast milli hennar og grasrótarinnar.Einn fundarmanna spurði hvort og hvenær hann ætlaði sjálfur í framboð og annar sagði að tími Jóns Baldvins væri kominn. Jón Baldvin svaraði því til að ef Jóhanna Sigurðardóttir væri tilbúin að taka að sér forystu hreyfingar jafnaðarmanna þá myndi hann styðja hana.
"Ef þetta á að verða eitthvert systralag um að hylma yfir ábyrgð, og hún geri það ekki, þá er ég tilbúinn að gefa kost á mér til forystu," sagði Jón Baldvin.
Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, utan Ólaf F. Magnússon, sátu hjá ţegar ...
„Umrćđa um innleiđingu kaupaukakerfis í Landsbankanum er algerlega ótímabćr. Ekkert slíkt ...
Engar skattahćkkanir eru áćtlađar í ţriggja ára áćtlun borgarstjórnar sem meirihluti Frams...
Selaskođun af sjó er ţađ nýjasta í ferđaţjónustu. Tveir menn á Hvammstanga bregđast viđ ve...
Fulltrúar í utanríkismálanefnd Alţingis munu ađ öllum líkindum eiga fund um Icesave međ ut...
Hópur sem vinnur ađ ţví ađ upprćta bótasvik sparađi Vinnumálastofnun útgjöld sem nema á fj...
Unniđ er ađ ţví ađ koma á fót svo kölluđum mansalsathvörfum ţar sem hćgt ađ er vernda fórn...
Flugumferđastjórar eru harđorđir í yfirlýsingu sem ţeir sendu frá sér. Ţar segir ađ ţađ ha...
Alls hafa 28 málum lögađila, sem grunađir eru um brot á gjaldeyrislögum, veriđ vísađ til F...
Fyrir helgi hrundi vefurinn karlmennogkrabbamein.is vegna gríđarlegs álags og ţurfti ađ fl...
Enn skelfur undir Eyjafjallajökli en skjálftarnir eru ekki stórir. Ţar hafa mćlst 30 til 4...
Ţess var minnst međ athöfn á Reykjavíkurflugvelli síđdegis ađ Alfređ Elíasson, stofnandi L...
Arion banki hefur gert samstarfs- og styrktarsamning viđ Stofnun um fjármálalćsi viđ Háskó...
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnađarráđherra hélt fund í morgun međ Arthuri Bogasyn...
Ráđhús Reykjavíkur er orđiđ eitt helsta vígi frjálshyggjunnar eftir hrun, ađ mati Dags B. ...
Umbođsmađur Alţingis hefur úrskurđađ ađ fjölbrautaskóla hafi veriđ óheimilt ađ b...
Eiga stjórnvöld ađ lćkka skatta og álögur á bensín?