- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Ljóst er að Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, verður ekki kjörinn formaður Samfylkingarinnar í póstkosningu bjóði hann sig á annað borð fram. Samkvæmt lögum flokksins er hann of seint á ferðinni með framboðshugleiðingar sínar til að svo megi verða, en hann getur boðið sig fram á landsfundi flokksins í mars.
Jón Baldvin sagði í gær að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætti að axla ábyrgð og víkja sem formaður Samfylkingarinnar. Sjálfur kvaðst hann styðja Jóhönnu Sigurðardóttur til að leiða flokkinn en ef gert yrði einhverskonar systralag til að hylma yfir ábyrgð væri hann tilbúinn að gefa kost á sér til forystu. Í framhaldinu sagðist Jóhanna styðja Ingibjörgu. Sjálf sagðist Ingibjörg ekki hafa tekið ákvörðun um að hætta.
Formaður kjörinn í póstkosningu eða á landsfundi
Samkvæmt lögum Samfylkingarinnar skal formaður flokksins kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal allra skráðra félagsmanna sé farið fram á það eigi síðar en 45 dögum fyrir boðaðan landsfund. Landsfundur flokksins hefst eftir 39 daga en hann fer fram dagana 26. til 29. mars. Fari ekki fram póstkosning skal formaður kjörinn á landsfundi til tveggja ára í senn.
Formannsslagur 2000 og aftur 2005
Tvívegis hafa farið fram kosningar um embætti formanns Samfylkingarinnar og fór fram póstkosning í bæði skiptin. Össur Skarphéðinsson sigraði Tryggva Harðarsson auðveldlega í kosningu í aðdraganda stofnfundar Samfylkingarinnar árið 2000. Fimm árum síðar felldi Ingibjörg Sólrún Össur svila sinn úr formannsstóli. Hún var sjálfkjörin sem formaður á landsfundi flokksins vorið 2007.
Hægt yrði að skapa 26 þúsund ársverk á næstu árum í fjárfestingarverkefnum sem næmu 280 - ...
Vinnumálastofnun hefur samið við Íþrótta- og Ólympísamband Íslands um að skipuleggja og st...
Reynir Traustason, ritstjóri DV, er að safna saman hópi fjárfesta til þess að kaupa DV, fr...
Rektorar lýsa yfir þungum áhyggjum sínum af áætlunum um enn frekari niðurskurð til háskóla...
Landlæknisembættið fagnar 250 ára afmæli sínu á morgun. Geir Gunnlaugsson landlæknir segir...
Semja þarf sérstakar reglugerðir í samgönguráðuneytinu ef hugmyndir hollensks fyrirtækis s...
Dagur án eineltis verður haldinn í fyrsta skipti á vegum Reykjavíkurborgar í dag og hefst ...
Það er sorgleg staðreynd að lítil sem engin breyting hafi orðið á stjórnum sex stærstu líf...
Aðgerðir stjórnvalda vegna skuldavanda heimila og einstaklinga í kjölfar bankahrunsins ver...
Unglingar gátu keypt tóbak í 32% tilvika þegar látið var á það reyna í nýrri könnun meðal ...
„Tilgangurinn með listamannalaununum er að efla listsköpun í landinu," segir Oddný G. Harð...
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er allt annað en ánægður með þá yfirlýs...
Um 61,4% eru frekar eða mjög andvígir því að ríkið greiði listamannalaun, samkvæmt niðurst...
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að stýrivextir lækki...
Grunur leikur á að kveikt hafi verið í gömlu fiskimjölsverksmiðjunni í Sandgerði í nótt og...
Furðufiskur sem fannst spriklandi úti í móa við Stekkjarhvamm í Hafnarfirði er s...
Hyggur þú á ferðalög í sumar?