Breiðavíkurdrengur segir Jóhönnu sýna yndislegt fordæmi Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. mars 2009 11:32 Georg Viðar Björnsson segir að enn sé beðið eftir niðurstöðu varðandi skaðabætur til handa Breiðavíkurdrengjunum.
Georg Viðar Björnsson, varaformaður Breiðavíkursamtakanna, fagnar því að forsætisráðherra hafi beðið drengina sem vistaðir voru á Breiðavíkurheimilinu afsökunar á illri meðferð sem þeir sættu. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, bað Breiðavíkurdrengi og aðra sem sætt hafa illri meðferð á heimilum ríkisins, afsökunar, fyrir hönd ríkisins, á Alþingi nú fyrir stundu. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, spurði hana hvort þetta stæði til af hálfu ríkisins, og sagði Jóhanna sjálfsagt að verða við því. Þó væri ekki sjálfgefið að þeir sem bjuggu við vondar aðstæður á þessum meðferðarheimilum veittu fyrirgefninguna. „Þetta hljómar mjög vel þó að það geti aldrei orðið neitt persónulegra en svo að Jóhanna sýnir þarna yndislegt fordæmi, að hún vill gera þetta og ganga fram fyrir þjóðina og biðjast afsökunar," segir Georg Viðar í samtali við fréttastofu. „Þetta var náttúrlega ógurlegt óréttlæti í sambandi við þessa krakka sem voru sendir þarna sem að ríkið hefði náttúrlega átt að hindra vegna þess að þetta gekk þarna á í áratugi," bætir Georg Viðar við. Georg Viðar segir þó að Breiðavíkursamtökin vinni ennþá að því að fá greiddar skaðabætur. „Það vefst svolítið fyrir þeim hvað þeir ætla að borga. Þeir hafa verið að tala um eina milljón eða eitthvað svoleiðis og láta jafnt yfir alla ganga," segir Georg Viðar. Honum líst fremur illa á þá hugmynd því að hann hafi sjálfur verið þarna í vist í tæp fimm ár en svo séu aðrir sem hafi verið þarna í hálft ár.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Fleiri fréttir Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Sjá meira