Viðskipti erlent

Skuldir Manchester United seldar á tombóluverði

Skuldir enska fótboltafélagsins Manchester United eru nú seldar á tombóluverði þar sem lánadrottnar félagsins eru óttaslegnir yfir skuldastöðu félagsins. Forgangslán félagsins ganga nú kaupum og sölum á 70% af nafnvirði.

Í frétt um málið í blaðinu Guardian segir að stuðningsmenn Manchester United hafi lengi haft áhyggjur af skuldum félagsins enda var félagið keypt af bandaríkjamanninum Malcom Glazer með mikilli skuldsetningu sem hann síðan setti yfir á félagið að kaupunum loknum. Raunar líkust kaup Glazer helst skuldsettri yfirtöku á hlutafélagi.

Meðan að allt lék í lyndi á fjármálamörkuðum heimsins 2006 til 2007 gekk dæmið upp hjá Glazer enda hægt að fá lán á mjög hagstæðum kjörum. Þessi staða hefur alveg snúist við í fjármálakreppunni.

Og þótt Manchester United eigi nú von í að vinna fimm titla á þessu keppnistímabili vegur það þyngra hjá lándrottnum félagsins að það mun missa samning sinn við bandaríska tryggingarrisann AIG um næstu áramót. Sá samningur gaf félaginu tæplega 57 milljónir punda eða um 9 milljarða kr. í aðra hönd. Engar líkur eru taldar á að félagið fái viðlíka upphæð úr næsta kostunarsamningi sínum.

Þar að auki er reiknað með félagið, eins og önnur fótboltafélög á Bretlandi, verði að lækka verð á leiki sína til að mæta versnandi efnahag stuðningsmanna sinna í kreppunni. Auk þess munu sjónvarpsréttindi ekki gefa jafnmikið af sér og áður svo dæmi séu tekin.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×