Lífið

Kynþokkafullur úlfamaður

Ástralinn Hugh Jackman á frumsýningu X-Men Origins: Wolverine í Bandaríkjunum fyrir skömmu.nordicphotos/getty
Ástralinn Hugh Jackman á frumsýningu X-Men Origins: Wolverine í Bandaríkjunum fyrir skömmu.nordicphotos/getty

Ástralski hjartaknúsarinn Hugh Jackman leikur aðalhlutverkið í hasar-myndinni X-Men Origins: Wolverine sem er nýkomin í bíó.

Hugh Jackman fæddist í Sydney 12. október 1968 og er yngstur í hópi fimm systkina. Þegar skólagangan hófst tók hann virkan þátt í skólaleikritum og fljótlega komu leiklistarhæfileikarnir í ljós. Jackman hóf leikferil sinn árið 1994 með hlutverkum í sjónvarpi og fimm árum síðar fékk hann að spreyta sig á hvíta tjaldinu í myndinni Paperback Hero. Fljótlega var ljóst að hann ætti eftir að ná langt í bransanum og aðeins ári síðar fékk hann sitt fyrsta tækifæri í Hollwood, sem Wolverine í fyrstu X-Men-myndinni. Jackman sló í gegn sem stökkbreyttur og skapstyggur slagsmálahundur með úlfaklærnar að vopni og hefur allar götur síðan getað valið úr hlutverkum í draumaborginni. Auk þess að leika í þremur X-Men-myndum til viðbótar hefur Jackman leikið í myndum á borð við Swordfish, Kate & Leopold, The Prestige og Australia, auk þess sem hann hefur leikið töluvert á sviði, meðal annars í söngleikjunum The Boy From Oz og Oklahoma!. Hann hefur þrívegis verið kynnir á Tony-leikhúsverðlaununum og stutt er síðan hann kynnti sjálf Óskarsverðlaunin í fyrsta sinn.

Jackman hefur alla tíð verið talinn sérlega kynþokkafullur og til marks um það var hann á síðasta ári kjörinn kynþokkafyllsti maður veraldar af bandaríska tímaritinu People. Hann lætur slíkt tal þó ekki stíga sér til höfuðs því hann hefur verið kvæntur í þrettán ár og eiga þau hjónin tvö ættleidd börn.

Eins og von er þykir Jackman orðið afar vænt um Wolverine, enda hafa þeir nú fylgst að í næstum áratug. Í nýju myndinni heldur hann áfram að þróa persónuna og kafa ofan í hugarfylgsni hennar. „Í þessari mynd fylgjumst við með ferðalagi Logan og innri baráttu hans á meðan hann gerir upp fortíð sína,“ sagði Jackman. „Wolverine hefur sérstaka eiginleika og sá helsti er sá að hann er hörkutól.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×