Hústökufólkið snýr aftur að Vatnsstíg 6. maí 2009 12:44 Lögregla rýmdi húsið síðast þegar fólkið hafði opnað Fríbúðina að Vatnsstíg.
Núna í hádeginu opnaði Fríbúðin svokallaða við Vatnsstíg 4 í Reykjavík en hún var fyrst opnuð þann 17.apríl. Húsið var rýmt af lögreglu fimm dögum síðar. Í tilkynningu frá hópnum segir að nú taki þau rýmið aftur í sínar hendur og opni búðina á ný. Tilefni þess er að í dag, 6.maí, er alþjóðlegur samstöðudagur með Rozbrat, gamalgrónu tökuhúsi í Poznan, Póllandi. „Lengi vel hafa þeir sem standa að Rozbrat átt í hættu að missa húsið og nú er hættan raunveruleg. Enduropnun fríbúðarinnar er yfirlýsing. Við sýnum fólkinu í Póllandi samstöðu. Þau vilja verja heimili sitt og félagsrými frá eyðileggingu af hálfu yfirvalda. Hún er einnig yfirlýsing um staðfestu og andstöðu. Við munum ekki lúta í lægra haldi! Borgin er fyrir fólkið! EKKI kapítalíska elítu: auðjöfra, bankakakkalakka, fjárfesta og verktaka," segir í yfirlýsingu frá hópnum. Þá segir að Fríbúð sé staður þar sem hægt er að þiggja veraldlega hluti. Staður þar sem allir eru velkomnir til að taka þátt. Þar eru engir peningar í spilinu. Í samtali við fréttastofu segist lögreglan vita af málinu og fylgist með. Þá segir lögreglan að hún ætli að hafa samband við eiganda hússins til þess að athuga hvort fólkið sé í húsinu á hans vegum. Ef svo sé ekki verði reynt að leysa málið með friðsamlegum hætti.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira