Bjartsýnn á að samstaða náist um Evrópumálin á þingi 28. maí 2009 10:22 Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunarillögu um aðildarumsókn að Evrrópusambandinu á Alþingi í morgun. Össur fór yfir kosti og galla varðandi veru okkar í Evrópusambandinu og sagði rökin með og á móti bæði eiga rétt á sér. Hann sagðist bjartsýnn á að góð samstaða næðist meðal flokkanna á þingi varðandi þessi mál. Tuttugu og fimm þingmenn bíða þess nú að taka til máls. Össur sagði mikilvægast að búa málið í hendur þjóðinni og mikilvægast væri að varðstaða yrði mynduð um forræði okkar yfir auðlindunum til lands og sjávar. Hann sagði einnig mikilvægt að staðið verði vörð um réttindi launafólks og vinnurétt, og almannaþjónustu yrði stýrt á félagslegum forsendum. Hann sagði mikilvægt að samhliða viðræðum yrði kannað samstarf í gjaldmiðilsmálum sem myndi styðja við gengi krónunnar. Hann sagði sterk rök vera fyrir því að þjóðin vilji fá að segja sitt álit í þessum málum nú og benti á að lokasprettur nýliðinnar kosningabaráttu hefði að miklu leyti snúist um þessi mál. „Nákvæmlega núna er íslenska þjóðion á krossgötum. Við höfum saman gengið í gegnum mestu erfiðleika sem dunið hafa á þjóðinni og við erum byrjuð að byggja upp hið nýja Ísland. Einmitt þá tel ég tímabært að þjóðin sjálf taki ákvörðun um hvert beri að stefna," sagði Össur. Hann fór síðan yfir rökin með og á móti aðildarumsókn. „Andstæðingar telja að afsal á fullveldi sé óviðunandi og þeir óttast að gangi Ísland í Evrópusamabandið þá verði ómögulegt að losna þaðan aftur. Þeir telja einnig að Íslandi þurfi að gefa eftir forræðið yfir auðlindunum í hafinu og fiskimiðin komist í hendur útlendinga til frambúðar. Þetta eru sterkustu rökin þeirra auk þess sem landbúnaðurinn geti átt erfitt uppdráttar." Hann sagði síðan að allir myndu vita hvar hann stæði í þessum málum enda hefði hann verið eindreginn og sannfærðru evrópusinni líkt og margir félagar hans í Samfylkingunni og einhverjir í Sjálfstæðisflokki. „Það kemur því engum á óvart að ég er ekki sammála þeim röksemdum sem ég var að telja upp." Hann sagði að við ættum að láta reyna á samning ekki síst vegna þess efnahagslega ávinnings sem hann telur að felist í aðild til skemmri og lengri tíma. „Þetta er engin alsherjarlausn sem losar okkur við öll okkar vandamál með því að smella fingri en ég tel að aðild muni renna sterkari stoðum undir þessi mál." Össur sagði einnig að upptaka evru myndi laða erlenda fjárfesta hingað til lands og við þyrftum erlenda fjárfesta til þess að vinna bug á atvinnuleysinu. Nú fara fram fjörugar umræður um þessa tillögu Össurar á Alþingi.
Mest lesið Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Hlýnar um helgina Veður Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Innlent Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Erlent Pilturinn er fundinn Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Sjá meira