- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Jarðskjálftahrinan hófst síðdegis í gær á sex kílómetra dýpi undir eldbrunnum Reykjanesfjallgarði á skilum jarðskorpufleka Norður-Ameríku og Evró-Asíu. Klukkan 21.33 í gærkvöldi kom stærsti skjálftinn til þessa, 4,7 stig, og fannst hann allt austur á Hvolsvöll og vestur í Búðardal. Klukkan tvö í nótt varð skjálfti upp á 3,9 stig, þriðji stórskjálftinn, upp á 4,3, varð klukkan 13.35 í dag, og klukkan 17.05 síðdegis varð skjálfti sem mældist fjögur stig. Ætla má að tveir þriðju hlutar landsmanna hafi fundið fyrir stærstu skjálftunum en hrinan hófst um fimm kílómetra austan Svartsengis en hefur síðan verið að færast austar. Alls hafa mælst um og yfir þúsund skjálftar þarna á rúmum sólarhring.
Gunnar Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir engin merki um eldvirkni. Skjálftarnir séu venjulegir brotaskjálftar.
En þetta var ekkert venjulegt fyrir matargestina í veitingasal Bláalónsins í gærkvöldi. Erlendir gestir stukku upp frá borðum. Fólk fór í loftköstum út og segist þjónn á staðnum aldrei hafa séð fólk standa jafn hratt upp frá borðum. Utandyra sáu gestirnir grjót hrynja úr hraunveggjum niður á gangstéttina og sjálft Bláa lónið skvetti úr sér. Alda skvettist upp á gluggana.
Og ferðamennirnir sem sátu á snæðingi í salnum í dag fundu svo sannarlega fyrir skjálftanum sem varð um hálftvöleytið. Belgísk kona sagði hjartað hafa tekið kipp og viðurkenndi að hafa orðið hrædd. Þetta væri í fyrsta sinn sem hún upplifði jarðskjálfta.
En sennilega voru það starfsmenn orkuversins í Svartsengi sem næstir voru upptökum stóra skjálftans í gærkvöldi. Þar lék allt á reiðiskjálfi. Tvær aflvélar slógu út, sem framleiddu 60 af 75 megavöttum orkuversins, og tók um þrjá tíma að ræsa þær á ný.
Þá er talið að skjálftarnir hafi valdið því rafstrengur til Grindavíkur fór úr sambandi og var bærinn án rafmagns í fimm stundir í morgun. Ekki er vitað til þess að neinar breytingar hafi orðið á borholum virkjunarinnar.Vísindamenn útiloka ekki fleiri stóra skjálfta og þá nær Reykjavíkursvæðinu. Gunnar Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir ekki hægt að útloka skjálfta á bilinu 4,5 til 5,5 og þá á svæðinu milli Kleifarvatns og Fagradalsfjalls.
Stefnt er ađ ţví ađ um nćstu helgi liggi fyrir afstađa ţingmannanefndar til ţess hvort ţei...
Rúmlega 40% Íslendinga eru ánćgđ međ störf Jóns Gnarr sem borgarstjóra í Reykjavík, samkvć...
Engin haldbćr óumdeild sönnunargögn virđast liggja fyrir í manndrápsmálinu í Hafnarfirđi, ...
Fimmta daginn í röđ mćlist yfir 20 stiga hiti á Norđurlandi, í ţeirri óvenjulegu hitabylgj...
Skáksveit Rimaskóla sigrađi á Norđurlandamóti barnaskólasveita sem fram fór um helgina í O...
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráđherra, var frummćlandi á fundi ađildarfé...
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráđherra, var frummćlandi á fundi ađildarfé...
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segist geta tekiđ viđ eftirliti međ smálánafyrirtćkjum ef ţ...
„Já, ég held ađ ţetta gangi bara vel hjá honum, allavega síđast ţegar ég vissi," segir Hei...
Hreppsnefnd Grímsnes- og Grafningshrepps íhugar ađ láta ađ framkvćma sýnatöku á stöđum ţar...
Morđvopniđ sem Gunnar Rúnar Sigurţórsson notađi til ađ bana Hannesi Ţór Helgasyni er enn ó...
Krakkarnir sem lentu í árekstri á Reykjanesbraut í gćr og voru á gjörgćslu í nótt eru í st...
Morđvopniđ sem Gunnar Rúnar Sigurţórsson notađi til ađ bana Hannesi Ţór Helgasyni er enn ó...
Morđiđ á Hannesi Ţór Helgasyni var sérstaklega hrottafengiđ og á sér líklega fá fordćmi í ...
Fátt bendir til ţess ađ dekkstu spár um atvinnuleysi muni rćtast ađ mati forstjóra vinnumá...
Morđiđ á Hannesi Ţór Helgasyni var sérstaklega hrottafengiđ og á sér líklega fá ...
Á ađ setja ţá sem stađnir eru ađ ölvunarakstri sjálfkrafa í tveggja sólarhringa fangelsi?