Innlent

Ráðherra á milljónahlut í Byr

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, er hluthafi í Byr en hlutur hans samkvæmt stofnfjáreign er 5,6 milljónir króna. Þetta kemur fram þegar rýnt er í upplýsingar um hagsmunatengsl þingmanna. Hefð virðist hafa myndast fyrir því að ráðherrar sem heita Árni eigi hlut í Byr því nafni hans Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, á einnig hlut í sparisjóðnum.

27 af 63 þingmönnum hafa upplýst um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings. Reglurnar tóku gildi 1. maí en þingmenn ákveða sjálfir hvort þeir upplýsi um hagsmuni sína. Hægt er að nálgast upplýsingarnar á vef Alþingis.

Flestir þeirra þingmanna sem hafa skilað upplýsingum um fjárhagslega hagsmuni segjast ekki hafa neina hagsmuni sem reglurnar taki til. Þó eru nokkrir auk Árna Páls sem tilgreina um tengsl sín sem þeir telja að reglurnar nái til.

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, á 50% eignarhlut í fyrirtækinu Þorskur á þurru landi. Hún er jafnframt framkvæmdastjóri félagsins.

Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, á 25% hlut í Víngott sem einkahlutafélag í meirihlutaeigu tengdaföður hans. Fram kemur að félagið sé smátt í sniðum, með heildarveltu undir 10 milljónum króna. Engar arðgreiðslur til Magnúsar hafa átt sér stað hjá viðkomandi fyrirtæki.

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, þiggur laun til loka júní vegna óunnins uppsagnarfrests hjá menntamálaráðuneytinu.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á hlut í Dýralæknaþjónusta Suðurlands þar sem hann starfaði áður en hann var kjörinn á þing.

Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, á kvikmyndagerðarfyrirtækið Nýtt líf. Þá þiggur hann heiðurslaun listamanna frá Alþingi.

Þá eiga Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigurður Ingi sæti í hinum ýmsu ráðum á nefndum vegna starfa sinna í bæjar- og sveitarstjórnum.


Tengdar fréttir

27 þingmenn hafa upplýst um hagsmunatengsl sín

27 af 63 þingmönnum hafa upplýst um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings. Þar á meðal eru allir þingmenn Framsóknarflokksins og fimm ráðherrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×