Innlent

Loka þarf Þjóðleikhúsinu í tvö leikár

Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið

Ástand Þjóðleikhússins er svo slæmt að það þyrfti að loka því í tvö ár til að ráðast í nauðsynlegar milljarðaendurbætur. Þá er brýnt að byggja við húsið eigi að koma í veg fyrir áframhaldandi hallarekstur. Þetta kemur fram í skýrslu sem sérfræðingar frá þýska fyrirtækinu Gerling+Arendt Planungsgesellschaft skilaði um málið í ágúst 2006.

Í skýrslunni eru gerðar alvarlegar athugasemdir við nánast allt sem við kemur ástandi og aðbúnaði leikhússins. Meðal annars kemur fram að leikhúsið uppfylli ekki alþjóðlega öryggisstaðla, brunavarnir séu hreinlega ekki til staðar og að vinnuaðstaðan þverbrjóti gegn lögum um vinnuvernd. Þetta sé vegna þess að þeir staðlar sem fylgt var þegar húsið var byggt árið 1950 séu löngu orðnir úreltir.

Húsið sjálft er sagt allt að því að hruni komið. Ekki aðeins sjáist miklar skemmdir á múrklæðningum, heldur sé stálgrindin í burðarvirki hússins tærð og steypan sjálf sprungin og illa farin. Allt þarfnist þetta mikillar endurnýjunar.

Enn fremur sé hljóð- og rakaeinangrun ábótavant, sökkull hússins sennilega laskaður og skipta þurfi um alla glugga. Þá sé tækjabúnaður hússins, sem er gríðarmikill, að mestu orðinn ónothæfur sökum aldurs. Hann skapi bæði hættu og virki ekki sem skyldi.

Skýrsluhöfundar leggja áherslu á að endurbæturnar verði gerðar í einu vetfangi. Síðan skýrslan var gerð hefur verið ráðist í endurbætur á ytra byrði hússins. Til hefur staðið að endurnýja tæki og búnað leiksviðsins og aðstöðu baksviðs, ásamt því að reisa viðbyggingu til austurs.

Í skýrslunni, sem er tæplega þriggja ára, er gert ráð fyrir að kostnaður við endurbæturnar nemi um 30 til 40 milljónum evra. Vegna þess að bæði þyrfti að greiða fyrir innlenda þjónustu og búnað erlendis frá gera gengissveiflur erfitt að spá fyrir um kostnaðinn í dag. Þó er ljóst að hann hleypur á milljörðum króna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×