Traust á Jóhönnu hefur snarminnkað á hálfu ári 16. september 2009 15:58 Jóhanna Sigurðardóttir nýtur talsvert minna trausts en áður.
Fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon nýtur mests trausts hjá Íslendingum samkvæmt nýrri könnun frá MMR en hann mældist með 37,7 %. Næst kemur Jóhanna Sigurðardóttir með 36% en athygli vekur að 58,5% prósent Íslendinga sögðust bera mikið traust til hennar í febrúar síðastliðnum. Því er ljóst að traust á henni hefur snarminnkað eða um 22 prósent á hálfu ári. Um 40% svarenda segjast bera lítið traust til þeirra Steingríms og Jóhönnu. Um leið hafa orðið þau tímamót í mælingum MMR á trausti til helstu leiðtoga stjórnmálanna, að forsetanum meðtöldum, að fleiri segjast bera lítið traust til þeirra allra en segjast bera mikið traust til þeirra. Ólafur Ragnar Grímsson nýtur mikils trausts hjá 22,9% svarenda. Tæp 47,7% segjast bera lítið traust til forsetans. Þá sögðust 19,4% bera mikið traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins og 18,3% sögðust bera mikið traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Á móti voru yfir helmingur sem sögðust bera lítið traust til þeirra Sigmundar og Bjarna. Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Borgarahreyfingarinnar var sögð njóta mikils trausts af 7,4% svarenda en 63,0% kváðust bera litið traust til hennar. Ef litið er til stuðnings við stjórnmálaflokka, má sjá að Steingrímur J. Sigfússon nýtur trausts meðal 93,2% þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna væri gengið til kosninga nú. Jóhanna Sigurðardóttir nýtur trausts meðal 82,9% stuðningsmanna Samfylkingarinnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýtur trausts meðal 67,1% Framsóknarmanna og Bjarni Benediktsson rekur lestina en 60,1% sjálfstæðismanna treysta honum. Könnunin var framkvæmd dagana 9.-14. september 2009 og var heildarfjöldi svarenda 909 einstaklingar.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Fleiri fréttir Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Sjá meira