Árásarkonan í Keflavík var allsgáð 29. september 2009 06:00 Af vettvangi Konan bankaði upp á í þessu húsi og stakk stúlkuna í brjóstið þegar hún kom til dyra. Hún var handtekin skömmu síðar á heimili sínu. Fréttablaðið/Vilhelm
Konan sem handtekin var í Keflavík á sunnudag fyrir að stinga fimm ára stúlku í brjóstið hefur játað brotið. Hún var hvorki undir áhrifum áfengis né vímuefna þegar árásin var gerð, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Henni hefur verið gert að gangast undir geðrannsókn. Stúlkan sem ráðist var á er á batavegi en er enn á Barnaspítala Hringsins. Litlu mátti muna að verr færi fyrir henni, en hnífurinn var einungis nokkrum millimetrum frá því að fara í hjarta hennar. Konan var í gær úrskurðuð í fimm daga gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Hún kærði ekki úrskurðinn til Hæstaréttar. Konan, sem er 22 ára gamall íslenskur ríkisborgari, bankaði á útidyrnar á heimili stúlkunnar við Suðurgötu í Keflavík á hádegi á sunnudag, og stakk stúlkuna síðan í brjóstið með stórum eldhúshníf þegar hún kom til dyra. Ellefu ára systir stúlkunnar varð vitni að árásinni. Leiddar hafa verið getur að því að konan hafi með árásinni viljað hefna sín á foreldrum stúlkunnar, en þeir höfðu kært hana fyrir skemmdarverk og hótanir. Að því er fram kom í fréttum RÚV í gær hefur konan áður hlotið dóm fyrir líkamsárás og hafa barnaverndaryfirvöld fylgst með henni lengi. - sh
Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Erlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Innlent Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Víðfeðm rannsókn, baunað á skólaþorp á bílastæði og stórvirki Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma „Enn sem er komið er staðan óbreytt og orð Sönnu ósönn“ Munu geta aðgreint fanga eftir alvarleika brota í nýju fangelsi Sjá meira