Orkuveitan bíður í ofvæni eftir svörum 9. október 2009 07:00 VIrkjunin verður kláruð ef lánið fæst. Hverahlíðarvirkjun verður hins vegar ekki byggð fyrr en fjármögnun er að fullu lokið en hefja átti framkvæmdir með hluta lánsfjárins frá EIB. Raforkan á að knýja álver í Helguvík eftir að öðrum áfanga er lokið.fréttablaðið/vilhelm
Ef Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) afgreiðir ekki þrjátíu milljarða króna lán til Orkuveitu Reykjavíkur (OR) setur það áætlanir fyrirtækisins um virkjanauppbyggingu í fullkomið uppnám. Ef lánið fæst verður Hellisheiðarvirkjun kláruð en ákvarðanir um byggingu Hverahlíðarvirkjunar hafa hins vegar verið settar á salt þangað til fjármögnun verkefnisins er að fullu lokið. Þrátt fyrir vilyrði neitaði EIB um miðjan júlí að ganga frá láninu til OR vegna óvissu í íslensku efnahagslífi. Lánið var upphaflega eyrnamerkt síðasta áfanga Hellisheiðarvirkjunar og fyrri áfanga Hverahlíðarvirkjunar. Þessar áætlanir hafa nú breyst. „Þó svo að þetta lán komi frá EIB munum við aðeins klára stækkunina á Hellisheiðarvirkjun en við munum ekki fara af stað með Hverahlíðarvirkjun fyrr en búið er að fjármagna alla framkvæmdina,“ segir Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR. Hann segir að ef lánið frá EIB fáist verði mun léttara en annars hefði verið að sækja það lánsfé sem upp á vanti til að klára framkvæmdir. „Ef þeir hins vegar neita okkur um lánið verður mun þyngra að reyna að fjármagna þetta annars staðar. Við eigum því mikið undir því að við fáum þessa fyrirgreiðslu,“ segir Hjörleifur. Orkan frá virkjununum er ætluð álverinu í Helguvík. Fjármögnun þeirrar framkvæmdar er ólokið. „Orkuveitan gerði ráð fyrir því að fjármögnun við framkvæmdina í Helguvík yrði lokið. „Við erum því ekki með skuldbindandi orkusamning í höndunum. Þeir eru ekki tilbúnir að gefa okkur grænt ljós á að þeir kaupi af okkur orkuna fyrr en þeir hafa lokið sinni fjármögnun. Við eigum ekki von á svörum frá Norðuráli fyrr en á fyrri hluta næsta árs.“ Á meðan beðið er fundar sendinefndar Orkuveitunnar vegna afhendingar á þremur vélasamstæðum af fimm frá fyrirtækinu Mitsubishi í Japan. Afhendingu vélasamstæðanna þriggja, sem setja á niður í fyrrnefndum virkjunum og kosta samtals fimmtán milljarða, hefur verið frestað áður. „Verið er að ræða hvort seinkun á afhendingu kemur til greina eða að hugsanlega verði hætt við móttöku þeirra,“ segir Hjörleifur. „Það er verið að fá viðbrögð okkar viðsemjenda við þessum kostum og hvaða afleiðingar þeir hafi í för með sér."
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira