Dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun 13. október 2009 13:40 Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd úr safni.
Karlmaður var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn nýtti sér ölvun og svefndrunga konu og hafði við hana samræði þegar hún var áfengisdauð. Glæpurinn átti sér stað í júlí á síðasta ári. Konan fór heim með manninum sem var kunningi kærasta hennar. Hún vaknaði um nóttina þegar maðurinn var að nauðga henni. Hún sagði fyrir dómi að hún hefði frosið, svo sofnað aftur. Maðurinn túlkaði þetta sem samþykki fyrir kynmökunum. Dómurinn taldi það ólíklegt að maðurinn hefði ekki gert sér grein fyrir því að konan væri áfengisdauð þegar hann hóf kynmökin. Daginn eftir sendi svo maðurinn konunni eftirfarandi skilaboð í gegnum Myspace-síðu: sæl, fórst þú eitthvað snemma í gær? ÞETTA er bara á milli okkar er þaggi?". Maðurinn vildi í fyrstu ekki kannast við að hafa sent skilaboðin. Hann reyndist svo tvísaga í málinu. Konan þótti trúverðug og margt benti til þess að framburður hennar væri áreiðanlegur. Maðurinn var því dæmdur í átján mánaða fangelsi óskilorðsbundið fyrir brotið og að auki er honum gert að greiða konunni sex hundruð þúsund krónur í skaðabætur auk þess að greiða lögfræði- og málskostnað.
Mest lesið „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Innlent Koma strandaglópunum heim í kvöld Innlent Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél Innlent Tveir handteknir vegna líkamsárásar Innlent „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ Innlent „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Innlent Við Íslendingar fórum bara á vertíð og drifum þetta af Innlent Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Erlent Fleiri fréttir Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Tveir handteknir vegna líkamsárásar Við Íslendingar fórum bara á vertíð og drifum þetta af Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél „Rosalega erfitt“ að keppa við innflutt grænmeti Stígvél og tækniframfarir Hótanir gegn háskólum og krossfestingar Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ „Ágæt ábending“ um bótaþega en tekur ekki undir allar athugasemdir fjármálaráðs Háholt sett aftur á sölu Skjólstæðingur heilbrigðisstofnunar veittist að starfsfólki Ráðherra bregst við athugasemdum, leikur ársins og ódýrt grænmeti „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Sjá meira