Ríkið veiti milljarði til Helguvíkurhafnar 20. október 2009 06:00 Helguvík Frá náttúrunnar hendi eru hafnarskilyrði góð en mikla uppbyggingu þarf til að taka á móti skipum fyrir stórt álver. Myndin er tölvuunnin fyrir framkvæmdaaðila
Forsvarsmenn Reykjanesbæjar kalla eftir svörum um hvort ríkið ætlar að taka þátt í kostnaði við uppbyggingu Helguvíkurhafnar. Sveitarfélagið ætlar að fullgera höfnina óháð aðkomu ríkisins en milljarðalántöku þarf hins vegar til. Slík lántaka gæti reynst þrautin þyngri. Helguvíkurhöfn er ekki á samgönguáætlun og ekkert fjármagn því eyrnamerkt hafnargerðinni. „Við höfum fengið þau svör frá forsvarsmönnum nokkurra ríkisstjórna, og þá sérstaklega þeirrar sem nú situr, að það væri ekkert mál að koma með okkur í þetta verkefni og taka þátt í fjármögnun við uppbyggingu hafnarinnar,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. „Það liggur hins vegar ekki ljóst fyrir hvort og hvernig þessu verður sinnt.“ Fram kemur í fundargerð Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar frá því í september að ráðið hafi „ítrekað sent erindi til Siglingastofnunar og Samgönguráðuneytisins undanfarin þrjú ár vegna framkvæmda í Helguvíkurhöfn án þess að ráðuneytið hafi komið því í samgönguáætlun“. Því hefur verið svarað til frá ráðuneytinu að fjármagn liggi því ekki fyrir og setja þurfi sérlög ef ríkið eigi að koma að framkvæmdinni. „Þar sem verkefnið er hluti af stöðugleikasáttmála ríkis og atvinnulífs er brýnt að verkefnið fái nú framgang“ segir jafnframt í fundargerðinni. Hafnargerðin, sem er nauðsynleg vegna álvers Norðuráls á staðnum, er risavaxið verkefni fyrir sveitarfélagið. Áætlaður kostnaður er tveir milljarðar króna. Hlutur ríkisins yrði 800 milljónir til milljarður króna, segir Árni. „Það er því löngu tímabært að við fáum úr þessu skorið.“ Árni segir að lán hafi ekki verið tekin til hafnargerðarinnar og ljóst að bæði yrði erfitt að finna það fjármagn og að slík lántaka yrði þungur baggi. Reykjanesbær sé það sveitarfélag sem hefur lægstu skatttekjur á landinu og standi ekki endalaust undir þeirri fjárfestingu sem þarf til að byggja upp í Helguvík. „Við hljótum að treysta á að ríkið komi með þetta framlag, eins og það hefur gert annars staðar. En það er auðvelt að fella okkur ef þetta fjármagn kemur ekki því annars þurfum við að standa undir allri þessari fjárfestingu, það gæti reynst okkur mjög erfitt.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira