- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Þrír íslenskir karlmenn og tvær konur voru handtekin í gær vegna rannsóknar á meintu mansali frá Litháen. Fimm litháískir karlmenn sitja þegar í gæsluvarðhaldi.
Málið upphófst á fimmtudag í síðustu viku þegar lögreglan lýsti eftir nítján ára litháískri stúlku sem talin er fórnarlamb mansals. Næstu dagana þar á eftir voru fimm Litháar handteknir og sitja þeir nú í gæsluvarðhaldi sem rennur út síðdegis í dag.
„Það hefur enginn játað þær sakir sem á þá eru bornar," segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem fer með rannsókn málsins.
Alda segir að umfang rannsóknarinnar sé enn að vaxa. „Við erum að skoða allt sem kann að tengjast ætluðu mansali og allri annarri skipulagðri glæpastarfsemi og samskiptum og samkiptaformum við þessa menn sem við erum þegar með í gæsluvarðhaldi," segir hún.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins telur lögreglan sig komna á slóð skipulagðs mansalshrings. Íslendingarnir sem handteknir voru í gær eru á fertugs- og fimmtugsaldri og munu ekki vera þekktir afbrotamenn. Húsleit var gerð á heimilum þeirra allra á höfuðborgarsvæðinu í gær. Að auki var leitað í fyrirtækjum og öðru húsnæði. Aðgerðirnar stóðu fram á kvöld. Lagt var hald á bókhaldsgögn, skjöl og aðra muni.
Yfirheyrslur yfir Íslendingunum fimm stóðu fram á kvöld. Ákveða á í dag hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir þeim og framlengingar á varðhaldi Litháanna fimm. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins eru þeir meðal annars grunaðir um afbrot tengd fíkniefnum, handrukkunum og annað ofbeldi.
Við aðgerðirnar í gær naut lögreglan á Suðurnesjum aðstoðar frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og í Stykkishólmi og Ríkislögreglustjóra.
Stúlkan frá Litháen mun enn vera undir verndarvæng lögreglunnar hér á landi. - gar
Viðræður ESB við Ísland varðandi aðild að Evrópusambandinu seinkar að minnsta kosti um mán...
Fyrirtækið E.CA. hefur sent frá sér fréttatilkynningu meðal annars vegna þess að „reynt he...
KSÍ lét dótturfélag sitt sem sá um samninga vegna sjónvarpsútsendinga frá knattspyrnuleikj...
Mun fleiri hafa neyðst til að leysa skuldavanda sinn fyrir dómstólum en í gegnum sértæka s...
Bensínlítrinn er nú sumstaðar kominn yfir 212 krónur í sjálfsafgreiðslu en ekki eru liðnar...
Kaupþing banki óskaði ítrekað eftir upplýsingum frá Ríkisskattstjóra um hvernig ætti að sk...
Nefnd um erlendar fjárfestingar frestaði á fundi sínum í dag, ákvörðun um hvort dótturféla...
Skjáreinn ætlar að hætta með útsendingar á fréttatímum í lok mánaðarins. Samkvæmt heimildu...
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist ekki vera sátt við hugmy...
Hæstiréttur sýknaði í dag Karl Georg Sigurbjörnsson lögmann sem ákærður var fyrir að hafa ...
Sendinefnd á vegum utanríkismálanefndar Alþingis heldur til Lundúna næstkomandi mánudag ti...
Um 600 jarðskjálftar hafa mælst í sjálfvirkri jarðskjálftamælingu Veðurstofunnar frá því á...
Varðstjórar Landhelgisgæslunnar urðu kl. 16:37 varir við óvenjulega siglingu fiskibáts í f...
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sophia Hansen greiði Sigurði ...
„Ég er að verða matarlaus. Ég veit ekki hvernig ég á að gefa börnunum mínum að borða“ segi...
Foreldrar fjögurra ára bresks drengs hafa verið harðlega gagnrýndir eftir að upp...
Ert þú ánægð(ur) með útspil ríkisstjórnarinnar til lausnar skuldavanda heimilanna?