Innlent

Ítreka tilmæli sín um heimsóknir til sjúklinga

Farsóttanefnd Landspítalans ítrekar fyrri tilmæli sín til ættingja sjúklinga að þeir takmarki heimsóknir eins og kostur er vegna hættu á að þeir geti smitað sjúklinga sem eru á spítalanum vegna inflúensu.

Margar deildir hafa þegar takmarkað heimsóknir og er fólk vinsamlegast beðið að virða þær takmarkanir.

Það vekur athygli farsóttarnefndar hve hátt hlutfall sjúklinga sem þurfa að leggjast á sjúkrahús vegna inflúensu leggjast á gjörgæsludeildir. Á hverjum tíma eru um 20% sjúklinga með inflúensu sem liggja á deildum Landspítala á gjörgæsludeild. Það er mun hærra en í árlegum inflúensufaraldri. Hins vegar er það í samræmi við reynslu annarra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×