Lét breyta glænýjum Audi 30. maí 2009 05:15 Nýi bíll Manúelu er allur hvítur með bleikum Audi-merkjum og hvítum og bleikum felgum. „
Við erum búin að vera að bíða eftir þessum bíl í svolítinn tíma og hann er nýkominn,“ segir Manúela Ósk Harðardóttir um glæsilegan bíl sem hún og eiginmaður hennar, Grétar Rafn Steinsson fótboltamaður, hafa fest kaup á. Bíllinn er af gerðinni Audi Q-7, en var breytt sérstaklega eftir óskum Manúelu. „Ég er svo hrifin af hvítum bílum svo ég vil hafa allt hvítt, en Audi-merkin aftan á og á stýrinu eru bleik. Felgurnar eru líka hvítar, nema lítill hluti í miðjunni sem er bleikur,“ segir Manúela sem sérhannaði einnig áklæðin inn í bílinn. „Það er hægt að ákveða hvernig maður vill hafa saumana, leðrið og leika sér með það. Nafnið mitt er á höfuðpúðanum, en ég skrifaði bara nafnið mitt á blað og þeir settu það á, svo þetta er í raun undirskriftin mín,“ útskýrir Manúela og segist ánægð með útkomuna. „Það er líka þægilegt að þetta er sjö manna bíll, því við lendum stundum í því að hafa ekki nóg pláss þegar við fáum hópa í heimsókn og erum að skutla og sækja fólk út á völl,“ bætir hún við. Aðspurð segir hún þau Grétar vera alsæl í Bolton, en hún sat úti í 25 stiga hita og sól þegar blaðamaður náði tali af henni. „Ég er mjög ánægð hérna úti. Við vorum að flytja á betri stað í bænum og það fer rosalega vel um okkur,“ segir Manúela.- ag Sérhannað áklæði Áklæðin innan í bílnum eru sérhönnuð með undirskrift Manúelu á höfuðpúðanum. Endurnýja hjúskaparheitin Manúela og Grétar Rafn fótboltamaður ætla að endurnýja hjúskaparheit sín hér á landi í júní, en þau gengu í það heilaga í Hollandi árið 2007.
Mest lesið Keypti lóð Gylfa og Alexöndru á 225 milljónir Lífið Bankaforstjóri selur glæsihýsi í Laugardalnum Lífið Myndaveisla: Suðræn stemning í afmælisveislu Tres Locos Lífið „Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“ Tíska og hönnun Allt í keng: Varð brátt í brók í vorveiðinni Lífið Frændsystkini á leið í lækninn: „Sá á fjölskyldugrúppunni að hann hafði líka komist inn“ Lífið Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada Tíska og hönnun Andrés og Margrét gengin í það heilaga Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Damon Younger og Ásdís hætt saman: „Það þarf enginn að efast um hvort ég elski hana“ Lífið Fleiri fréttir Andrés og Margrét gengin í það heilaga Bankaforstjóri selur glæsihýsi í Laugardalnum Myndaveisla: Suðræn stemning í afmælisveislu Tres Locos Allt í keng: Varð brátt í brók í vorveiðinni Keypti lóð Gylfa og Alexöndru á 225 milljónir Nostalgía og glænýr sumarsmellur Spænsk sumarveisla að hætti Maríu Gomez Sumarglaðningur Vigdísar og Ara Freys sparkaði sér í heiminn Dóttir Alfreðs og Fríðu komin með nafn Einstakt hönnunarhús í Hlíðunum með gufu, heitum potti og útisturtu Auðveldara að vera aðeins væmnari saman Ætla að fylla Borgarnes með mörgþúsund manns Fimmtán ómissandi hlutir í útileguna Helvítis kokkurinn: Eldbökuð pizzasamloka Damon Younger og Ásdís hætt saman: „Það þarf enginn að efast um hvort ég elski hana“ Frændsystkini á leið í lækninn: „Sá á fjölskyldugrúppunni að hann hafði líka komist inn“ Gústi B fann ástina hjá Hafdísi Sól Lækkuðu hitastigið fyrir leðurklædda kvikmyndaáhugamenn Íslendingur áberandi í bandarískri raunveruleikaseríu Undurfagurt og heillandi einbýli í Mosfellsbæ Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun fékk óvænta heimsókn Vilt þú taka fjármálin þín í gegn? Gummi Emil grípur til sinna ráða eftir fangelsisdóm Pétur G. Markan og Margrét selja einbýli við eina fallegustu götu Hafnarfjarðar Aron Can og Gummi Emil í fullu fjöri með Mari Laufey ástfangin Sumarleg grillveisla að hætti Lindu Ben Féll kylliflatur fyrir einlægni Taylor Swift Allt frá flugferðum yfir í dót úr bílskúrnum í vinning Söngvari Crazy Town látinn Sjá meira