Innlent

600 milljarðar eða neyðarlög

Sigríður Mogensen. skrifar

Ríkið fær rúman 600 milljarða króna reikning verði neyðarlögunum hnekkt. Það gæti skapað ríkinu verulega erfiðleika.

Vinnuskýrsla starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um málefni Íslands var birt í dag. Helsta áhyggjuefnið er miklar skuldir þjóðarbúsins. Þrátt fyrir þá staðreynd telja starfsmenn sjóðsins að skuldirnar séu viðráðanlegar enda muni ganga tiltölulega hratt að greiða þær niður.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur áhyggjur af afleiðingum þess ef neyðarlögin frá í haust haldi ekki. Verði þeim hnekkt þýði það aukareikning upp á 40% af landsframleiðslu, sem yrði nánast ómögulegt fyrir þjóðina að bera.

Í skýrslunni segir að endurhanna eða afskrifa þurfi tvö af hverjum þremur af lánum fyrirtækja landsins. Fimmtungur af stærstu fyrirtækjunum séu í greiðslustöðvun eða gjaldþrotameðferð. Þá segir að 20% íslenskra heimila séu tæknilega gjaldþrota og sambærilegt hlutfall ráði vart við skuldir sínar.

Í skýrslunni segir að gjaldföllnum lánum í bönkunum hafi fjölgað um 15-17% og mat á eignum gefi dökka mynd af gæðum þeirra eigna sem bankarnir hafa veð í.

Þrátt fyrir mikla erfiðleika í efnahagslífinu segir í skýrslunni að ástandið sé almennt betra en búist var við fyrir tæpu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×