Segja mannréttindi sín brotin 19. nóvember 2009 04:45 Kvartar til umboðsmanns. Jóhann Ágúst Hansen er í fararbroddi hópsins. fréttablaðið/gva
26 manna hópur, með Jóhann Ágúst Hansen viðskiptafræðing í fararbroddi, hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna meints brots Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra á 2. gr. stjórnarskrárinnar. Í henni er fjallað um þrískiptingu valds. Telur hópurinn að Steingrímur hafi gerst brotlegur við greinina þegar hann sem fjármálaráðherra og handhafi framkvæmdarvalds gerði Icesave-samningana og síðar sem alþingismaður og handhafi löggjafarvalds veitti þeim brautargengi á Alþingi með atkvæði sínu. Er það mat hópsins að þetta stangist ekki einasta á við stjórnarskrá heldur gangi líka gegn mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og mannréttindasáttmála Evrópu. Í kvörtuninni segist hópurinn telja háttsemi Steingríms brot á mannréttindum sínum. Meðal þeirra sem standa að kvörtuninni eru þingmenn Hreyfingarinnar: Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir en áðurnefndur Jóhann Ágúst er eiginmaður Margrétar. Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, segir að þrátt fyrir aðra greinina sé beinlínis gert ráð fyrir því í stjórnarskránni að ráðherrar séu jafnframt þingmenn. Í 51. grein segi að ráðherrar eigi sæti á Alþingi en hafi aðeins atkvæðisrétt ef þeir séu jafnframt kjörnir þingmenn. Umkvörtunin vegna tilviks Steingríms eigi því varla stoð í stjórnarskránni. Það sé svo annað mál hvort það sé heppilegt fyrirkomulag eða ekki að þingmenn séu ráðherrar.- bþs
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira