Innlent

Brown búinn að svara Jóhönnu

Höskuldur Kári Schram skrifar

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur svarað bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Í bréfinu er hvergi vikið að tilboði Jóhönnu um sameiginlegan fund ráðheranna ytra.

Svarbréf Gordons Brown er dagsett 13 nóvember síðastliðinn en forsætisráðuneytið birti bréfið opinberlega í dag í kjölfar fyrirspurnar fréttastofu Stöðvar tvö.

Jóhanna Sigurðardóttir, sendi forsætisráðherrum Bretlands og Hollands bréf í lok ágústmánaðar vegna Icesave málsins - þar sem hún útskýrði meðal annars fyrirvara alþingis og bauðst ennfremur til að funda með ráðherrunum ytra.

Forsætisráðherra Hollands svaraði bréfi Jóhönnu 12. nóvember eða degi áður en Brown sendi sitt svar.

Bréf breska forsætisráðherrans er stutt og almenns eðlis. Í bréfinu segist Gordon Brown vera ánægður með þann árangur sem hafi náðst í viðræðum landanna vegna Icesave málsins. Ennfremur segist hann binda miklar vonir við hið nýja Icesave frumvarp enda muni það styrkja lagalegan grundvöll Icesave samkomulagsins.

Í bréfinu er hins vegar hvergi vikið að tilboði Jóhönnu um sameiginlega fund ráðherranna ytra. Breski forsætisráðherrann endar bréf sitt á þeim orðum að hann vonist til þess að Icesave deilan verði sem fyrst til lykta leidd.

Jóhanna svarar bréfi Gordons Brown 17. nóvember eða tæpri viku seinna. Í bréfi sínu leggur Jóhanna áherslu að í hinu nýja Icesave samkomulagi fallist Íslendingar ekki á þau rök að þeim sé lagalegt skylt að greiða Icesave reikninginn. Segist hún búast fastlega við því að málið verði tekið upp að nýju í vináttu og drengskap komist dómstólar að sömu niðurstöðu og Íslendingar.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×