- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Það ríkir mikið prjónaæði á Íslandi um þessar mundir. Til marks um það er komin út ný prjónabók og kennsludiskur fyrir byrjendur og lengra komna.
„Við vildum forvitnast hvað sé að gerast í allri þessari prjónagrósku á Íslandi," segir Erla Sigurlaug Sigurðardóttir, sem gefur út bókina Prjónaperlur – prjónað frá grasrótinni, ásamt frænku sinni, Halldóru Skarphéðinsdóttur.
„Halldóra er þaulvön, en ég byrjaði bara í fyrra og þegar ég missti vinnuna fór ég að hugsa um þessa bók. Við Halldóra fórum á stúfana og söfnuðum alls konar uppskriftum frá prjónakonum héðan og þaðan af landinu og einum karli sem við erum mjög stoltar að hafa fundið," segir Erla, en í bókinni gefa átján prjónarar uppskriftir sínar auk höfundanna. Ein af þeim er Ragnheiður Eiríksdóttir, en hún er nú að gefa út DVD-diskinn Prjónum saman. Diskurinn er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi, með prjónakennslu á íslensku.
„Þetta er eitthvað sem hreinlega vantaði í okkar prjónaflóru svo ég ákvað bara að sinna þessu. Mér rann blóðið til skyldunnar," segir Ragnheiður og hlær. „Það er til mjög mikið af myndböndum á netinu sem fólk nýtur sér, en það eru alls ekki allir sem treysta sér til að nota leiðbeiningar á ensku," segir Ragnheiður, en á disknum fer hún í rúmlega fjörutíu aðferðir í prjóni fyrir byrjendur og lengra komna.
Það er nokkuð ljóst að algjört prjónaæði ríkir á Íslandi um þessar mundir og aðspurðar segja bæði Erla og Ragnheiður það tengjast kreppunni að einhverju leyti. „Sjálf byrjaði ég að prjóna til að sinna sköpunarþörfinni. Ég fann loksins þörfina í gegnum mömmu og Halldóru sem eru báðar mjög vanar. Þetta er bara smitandi og það er rosalega gaman að sjá sína afurð verða til í höndunum. Kannski er það líka einhver tilfinning núna í kreppunni, einhver nægjusemi," segir Erla og Ragnheiður tekur í sama streng. „Ég held að það hafi verið komin ákveðin prjónabylgja í gang fyrir hrun og heimskreppuna miklu, en síðan hafi þetta náð miklu meiri útbreiðslu eftir hrun. Fólk er kannski meira að leita inn á við og að einhverri iðju sem er þægileg og skilur eitthvað eftir sig," segir Ragnheiður.
alma@frettabladid.is
Ný heimildarmynd um popparann Michael Jackson verđur frumsýnd í nćsta mánuđi. Rithöfunduri...
„Viđ fengum ósk um vináttulandsleik frá Hollendingum og viljum gjarnan ađ hann fari fram á...
Hamskipti Norrćna hússins verđa 25. mars, á fimmtudaginn í nćstu viku. Ţann dag verđur ţađ...
Ólafur Josephsson tónlistarmađur hefur sent frá sér sjöttu breiđskífuna undir nafninu Sta...
Hljómsveitin Green Day er ţegar byrjuđ ađ vinna í nćstu plötu ţrátt fyrir ađ innan viđ ár ...
Paula Abdul, fyrrverandi dómari í American Idol, verđur ekki dómari í hćfileikaţćttinum St...
Hljómsveitin The Wintergreens spilar í Batteríinu í kvöld. Ţetta er kvartett frá Leith í S...
Opnunarhátíđ Hönnunarmars 2010 var haldin í Hafnarhúsinu á fimmtudag og var fjöldi góđra g...
Á morgun kl. 14.00 verđa tónleikar í tónleikaröđ Menningarmiđstöđvarinnar Gerđubergs; Tóne...
Stórleikkonan Reese Witherspoon er orđuđ viđ ađalhlutverkiđ í nýrri mynd, The Pioneer Woma...
Páll Óskar Hjálmtýsson og Hjaltalín stóđu fyrir mögnuđum tónleikum á Nasa í samstarfi viđ ...
Veriđ er ađ vinna ađ nýrri mynd um síđustu daga af ćvi poppgođsins Michaels Jackson, segir...
Facebook samskiptasíđan sem hefur tröllriđiđ Íslensku netsamfélagi tekur á sig ýmsar myndi...
Fyrrverandi ástmađur söngkonunnar Lady Gaga hefur stefnt henni og krefst 30 milljóna dolla...
Peter Andre, sem einusinni var ţokkalega frćgur söngvari en er nú ţekktari sem fyrrverandi...
Fyrirsćtan Kerry Katona er ástfangin af einkaţjálfaranum sínum, Kevin Green. Kat...