Báðust afsökunar á „fulleldis“ auglýsingu 1. desember 2009 17:14 Fögnuðu „fulleldinu“, „
Það voru mikil vonbrigði að sjá auglýsinguna í Morgunblaðinu í morgun. Hún var ekki aðeins helmingi minni en í fyrra heldur einnig verulega illa unnin, bæði hvað varðar útlit og texta," segir í yfirlýsingu frá VR en heilsíðu auglýsing í Morgunblaðinu olli óánægju meðal félagsmanna. Tilgangur hennar var að fagna fullveldi Íslendinga. Þeir sem auglýsa með VR í þessari umdeildu auglýsingu eru fyrirtækin Olís, Ormsson, Sölufélag Garðyrkjumanna ehf., og svo Sjálfstæðisflokkurinn. Þá eru einnig Verkalýðsfélagið Hlíf og Samtök iðnaðarins með í auglýsingunni. Þessi tenging hefur meðal annars orðið tilefni opins bréfs frá félagsmanni VR. Í yfirlýsingu VR segir: „Þá olli það einnig vonbrigðum að sjá að þátttakendur í kveðjunni voru aðeins 7 í ár, en í fyrra voru þeir 23,[...]. Af þeim sökum má skilja þátttöku stjórnmálaflokks í auglýsingunni öðruvísi í ár en í fyrra, þegar Samfylkingin var meðal þátttakenda. Einnig spilar inn í að nú eru háværar deilur í þjóðfélaginu um alvarleg mál sem kljúfa þjóðina í fylkingar. Það er ekki hlutverk VR að taka þátt í slíkum deilum og þykir öllum hlutaðeigandi miður að þannig hafi mátt skilja auglýsinguna." Þá kemur einnig fram í yfirlýsingunni að Morgunblaðið hefur móttekið athugasemdir VR og beðist afsökunar. Blaðið ætlar ekki að innheimta greiðslu vegna þátttöku VR í auglýsingunni. Þegar haft var samband við formann Verkalýðsfélagsins Hlífar, Kolbein Gunnarsson, sagði hann að það hefði verið haft samband við sig frá Morgunblaðinu og félaginu boðið að vera með í auglýsingunni. Sjálfur sagðist hann ekki vita hverjir aðrir auglýstu. Þá vakti meinleg stafsetningarvilla í fyrirsögn auglýsingarinnar athygli lesanda, þar var „fulleldi" Íslands fagnað.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Fleiri fréttir Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Sjá meira