Innlent

Brennuvargar á ferð

Brennuvargar kveiktu í strætóskýli við Seljabraut í Breiðholti laust fyrir klukkan tvö í nótt og urðu talsverðar skemmdir á skýlinu. Nokkru fyrr, eða rétt upp úr miðnætti, var kveikt í ruslatunnum við Háberg í Breiðholti, en þær stóðu upp við húsvegg. Tunnurnar bráðnuðu en lögreglumönnum tókst að slökkva eldinn. Gerendur komust undan í báðum tilvikum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×