Innlent

Skattleggjum okkur ekki útúr kreppunni

Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir að íslenskt samfélag muni ekki skattleggja sig út úr kreppunni. Síðari umræða um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 fer fram í borgarstjórn í dag.

„Við verðum að fara sömu leið og heimili og fyrirtæki landsins, forgangsraða í þágu þess sem mestu skiptir, hagræða og spara. Við verðum að ýta undir dugnaðinn og metnaðinn sem einkennir þjóðarsálina. Hvetja til atvinnusköpunar og standa þannig vörð um tekjugrundvöll fjölskyldna og fyrirtækja og tryggja að íbúar þessarar borgar njóti góðrar grunnþjónustu," sagði Hanna Birna í ræðu sinni í borgarstjórn að fram kemur í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Hanna Birna kynnti breytingatillögur meirihlutans við fjárhagsáætlun borgarinnar. Í tilkynningunni segir að borgin forgangsraði í þágu barna og velferðar án þess að hækka skatta eða gjöld á grunnþjónustu.

Áætlað er að liðurinn fjárhagsaðstoð muni hækka úr 1,6 milljarði króna samkvæmt útkomuspá 2009 í rúma 2 milljarða. Lagt er til að 142 milljónir króna verði varið til að hækka hámarksfjárhæð fjárhagsaðstoðar í samræmi við verðlagsbreytingar síðustu 12 mánaða.

Í máli borgarstjóra kom fram að ákvörðun var tekin um að fjárhagsaðstoð og húsaleigubætur séu bundnir liðir þannig að reynist áætluð útgjöld of lág þá mun borgarsjóður engu að síður greiða það sem upp á vantar. „Þannig á enginn velkjast í vafa um að við munum standa við bakið á almenningi í borginni sem á rétt á þessum stuðningi," sagði Hanna Birna.




Tengdar fréttir

Síðari umræða um fjárhagáætlun borgarinnar

Síðari umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 fer fram á fundi borgarstjórnar í dag. Áætlunin var lögð fram í byrjun mánaðarins en til stendur að spara yfir þrjá milljarða króna. Í áætluninni er gert ráð áframhaldandi samdrætti í tekjum borgarinnar. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks segir að honum verði mætt með hagræðingu í stjórnsýslu og rekstri, en skattar og gjöld fyrir grunnþjónustu verði ekki hækkuð. Fundur borgarstjórnar hefst klukkan tíu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×