Innlent

Rændi sjoppu með sprautunál

Rán var framið í söluturni við Bústaðaveg eftir hádegi í dag. Ung kona ógnaði starfsstúlku með sprautunál og komst undan með eitthvað að peningum, að sögn varðstjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað hversu há upphæðin er. Að svo stöddu fengust ekki nánari upplýsingar um málið hjá lögreglu.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×