Innlent

Málningarskvettumenn ekki hættir

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hús Steingríms Wernerssonar 11. desember.
Hús Steingríms Wernerssonar 11. desember. MYND/Icegroup holding

„Við munum ekki sætta okkur við að horfa upp á nokkurra mánaða eða jafnvel skilorðsbundna dóma yfir mönnum sem skulda þjóðinni fleiri hundruð milljarða,“ segir talsmaður Icegroup holding-hópsins sem svo kallar sig og hefur undanfarið staðið fyrir því að ata eigur íslenskra auðmanna rauðri málningu, nú síðast hús Steingríms Wernerssonar aðfaranótt 11. desember.

Talsmaðurinn segir starfsemi hópsins vera rétt að byrja og telur það forkastanlegt að stjórnvöld skuli ekki vera búin að frysta eignir þeirra sem ábyrgð beri á efnahagshruni landsins árið 2008. „Þjóðin er stórsköðuð og það mun taka áratugi að koma henni á réttan kjöl,“ heldur talsmaðurinn áfram ómyrkur í máli og heitir því að þeim, sem hann kallar þjóðníðinga, verði hvergi rótt, hvorki hérlendis né erlendis, á meðan þeir sjái ekki sóma sinn í að skila peningunum og játa misgjörðir sínar eins og það er orðað í viðtali Vísis sem átti sér stað um tölvupóst.

Talsmaður Icegroup holding telur það ganga kraftaverki næst ef þjóðin missir ekki sjálfstæði sitt í kjölfar hegðunar „þessara manna“ og er mikið niðri fyrir. Hann segir hópnum ofbjóða hegðun óreiðumanna og að hann muni gera allt sem í hans valdi stendur til að koma vitinu fyrir þá og leyfa þeim ekki að njóta stolinna fjármuna.

Talsmaðurinn klykkir út með því að segja blaðamanni að allir félagar Icegroup holding-hópsins séu í vinnu og að það sem þau eigi eigi þau nær skuldlaust og þess vegna hafi aðgerðir þeirra ekki verið alvarlegri hingað til. Þau séu hins vegar sárreið og þoli ekki að horfa lengur upp á aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda sem augljóst sé hverjum þjóni.

„Það sem á undan er gengið er aðeins létt upphitun og sýnishorn af því sem koma skal,“ er lokafyrirheitið.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×