Innlent

Ríflega þrjú þúsund skátar efna til þings

glæsileg setningarathöfn Mikið var um dýrðir þegar Roverway-skátamótið var sett við hátíðlega athöfn á túninu við Háskóla Íslands. Fjölmiðlafulltrúi mótsins segir setninguna hafa tekist alveg ofboðslega vel.
glæsileg setningarathöfn Mikið var um dýrðir þegar Roverway-skátamótið var sett við hátíðlega athöfn á túninu við Háskóla Íslands. Fjölmiðlafulltrúi mótsins segir setninguna hafa tekist alveg ofboðslega vel. fréttablaðið/gva
Rúmlega 3.100 skátar frá 44 löndum eru nú samankomnir á Íslandi til þess að taka þátt í Roverway-skátamótinu. Skátarnir eru á aldrinum 16 til 22 ára, en auk þeirra er mikill fjöldi starfsmanna og sveitaforingja. Stærstu hóparnir koma frá Spáni, Portúgal, Ítalíu og Frakklandi, og litlir skátahópar komu til dæmis frá Hong Kong, Mexíkó og Ástralíu.

Mótið var sett við hátíðlega athöfn fyrir framan Háskóla Íslands í gærmorgun. „Við vorum ofboðslega heppin með veður og setningar­athöfnin heppnaðist alveg ofboðslega vel," segir Benjamín Axel Árnason, fjölmiðlafulltrúi mótsins.

Að setningunni lokinni héldu skátarnir strax í fjögurra daga ferðir víðs vegar um landið. Búið var að skipta þeim í 52 fjölþjóðlegar sveitir, sem hver og ein er skipuð 50 skátum og tveimur íslenskum skátaforingjum. Að sögn Benjamíns eru leiðangrarnir mjög fjölbreyttir, eins og skátastarfið.

„Þetta er allt frá fjallaferðum og klifri, í menningu, listir, tækni og vísindi." Meðal þess sem í boði er eru leiðangur á Hvannadalshnjúk og ganga um Hornstrandir, menningarferð um Reykjavík, hesta- og menningarleiðangur um æskuslóðir Halldórs Laxness og leiðangur um höfuðstöðvar Latabæjar.

Þá eru svokallaðir samfélagshópar á Sólheimum í Grímsnesi og í Stykkishólmi, svo fátt eitt sé nefnt. „Hóparnir taka svo saman á föstudag og halda á Úlfljótsvatn," segir Benjamín. Þar verður „Alþingi á Úlfljótsvatni" haldið í dag. „Við skiptum niður í dagskrárþorp á föstudag og laugardag og á sunnudag verðum við með karnivaldag. Það er algjört ævintýri, því þá er hvert einasta land með kynningar á sínu landi og menningu."

Roverway-mótið er nú haldið í þriðja sinn, en það var haldið í Portúgal árið 2003 og á Ítalíu 2006. Undirbúningur mótsins hefur staðið í rúm tvö ár að sögn Benjamíns. Hann segir jafnframt um 500 íslenska skáta hafi unnið að undirbúningnum. thorunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×